Göldróttir kökupinnar



Hægt er að útbúa ýmislegt sniðugt fyrir Hrekkjavökuna og eru þessir kökupinnar alls ekki eins flóknir í framkvæmd eins og þeir líta út fyrir að vera 🙂

Galdrapottar 

Hvað þarf til?

  • Kældar kökukúlur (Hægt að nota hvaða blöndu sem er svo bakið þá köku sem ykkur þykir góð)
  • Svart Candy-Melts
  • Grænt smágert nammi (að þessu sinni notaði ég Nerds nammi en einnig er hægt að nota grænt kökuskraut)
  • Eggjahvítuglassúr í svörtu, grænu, rauðu og appelsínugulu
  • Kökupinnaprik
  • Frauðplast

Aðferð

  1. Útbúið eggjahvítuglassúr. Þeytið saman 3 eggjahvítur og 500gr af flórsykri þar til þykkt og fínt. Skiptið niður í 4 litlar skálar og litið í svörtu, grænu, rauðu og appelsínugulu. Setjið í litla zip-lock poka og klippið pínulítið gat á endann eða notið sprautupoka og fíngerða stúta (ég notaði Wilton stúta númer 2 og 5 í þetta skiptið). Setjið plastfilmu yfir endann á meðan glassúrinn er ekki í notkun því hann harðnar fljótt og sprautan gæti stíflast.
  2. Bræðið hjúpinn og hafið nammi, kökupinnaprik og frauðplast tilbúið.
  3. Dýfið kúlunni í hjúpinn, látið leka örlítið af  henni og setjið því næst á hvolfi á bökunarpappír. Með þessu móti myndast „kantur“ fyrir pottinn sem skreyttur verður síðar, látið storkna.
  4. Sprautið eldinum á botninn á galdrapottinum með því að hafa hann á hvolfi fyrir framan ykkur, byrjið á rauða glassúrnum, leyfið að storkna örlítið og setjið því næst þann appelsínugula. Mótið loga eins og ykkur þykja fallegir.
  5. Sprautið haldföng á sitthvora hliðina á pottinum með svörtum glassúr með því að teikna litla hringi.
  6. Sprautið vel af grænum glassúr á toppinn og áður en hann storknar þarf að strá grænu nammi/kökuskrauti yfir.
  7. Stingið í frauðplast og leyfið að storkna alveg áður en geymt er.

3 Replies to “Göldróttir kökupinnar”

  1. Sæl
    Mikið er þetta allt fallegt hjá þér. Mig langar til að vita hvar þú færð þetta hráefni sem þú nefnir eins og t.d. Candy-Melts og Nerds nammi
    Kveðja
    Sigríður

    1. Sæl Sigríður og takk fyrir hrósið

      Mikið af hráefni fyrir kökupinna hef ég keypt í Kosti hingað til. Nerds nammi er amerískt og fæst einnig þar, annars er hægt að nota annað grænt kökuskraut/perlur líka 🙂

      Vona þetta hafi hjálpað
      Kv.Berglind

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun