Súkkulaði brownies



Súkkulaði brownies

Ég er gríðarlega mikill súkkulaðigrís og er alltaf til í að prófa nýjar uppskriftir þegar kemur að súkkulaði.

Brownies eru jafn misjafnar og þær eru margar en þessi uppskrift er alveg guðdómlega góð. Kakan er örlítið seig undir tönn, með ríkt súkkulaðibragð og í raun hin fullkomna súkkulaði-brownie að mínu mati.

Þessa uppskrift fann ég á matarblogginu hennar Laura Vitale og finnst mér hún mjög skemmtilegur matarbloggari. Hér er ég búin að útfæra uppskriftina á íslensku og held ég hafi ekki breytt miklu, ef einhverju.

Súkkulaði brownies uppskrift

  • 150gr smjör við stofuhita
  • 200gr suðusúkkulaði (bráðið)
  • 1 bolli sykur
  • 2 tsk vanilludropar
  • ¼ tsk salt
  • 1 msk bökunarkakó
  • 2 egg
  • 2 msk volgt vatn
  • 2/3 bolli hveiti

Aðferð

  1. Hitið ofninn 175 gráður
  2. Spreyið um 20x20cm ferkantað form með matarolíuspreyi (penslið matarolíu á) og leggið bökunarpappír í formið svo hann standi uppúr amk á 2 hliðum (til að hægt sé að lyfta kökunni upp þegar hún er tilbúin).
  3. Þeytið saman smjör og sykur þar til létt og ljóst.
  4. Bætið eggjum og vanilludropum samanvið og skafið niður á milli.
  5. Næst fer bráðið súkkulaðið í blönduna og að lokum öll þurrefnin.
  6. Hrærið rólega þar til allt er vel blandað og varist að vinna deigið ekki of lengi.
  7. Bakið í um 40 mínútur eða þar til prjónn kemur út aðeins með smá kökumylsnu á en ekki blautu deigi.
  8. Kælið í nokkrar mínútur í forminu, lyftið kökunni því næst yfir á kæligrind/bretti og kælið alveg (um 1 klst).
  9. Þegar kakan er orðin köld er hún skorin í hæfilega bita og gott er að bera hana fram með rjóma/ís og einnig jarðaberjum.

Tags:

2 Replies to “Súkkulaði brownies”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun