Hér er á ferðinni hindberja og vanillu ostakaka í litlum glösum.
Þetta er klárlega einn af betri eftirréttum sem ég hef útbúið og held ég þessi sé kominn efst á óskalistann fyrir komandi matarboð. Ekki skemmir síðan fyrir að hann er ótrúlega fljótlegur og einfaldur, tók mig innan við klukkutíma að útbúa hann og ganga frá öllu í fyrstu tilraun.
Hindberjadraumur
- ¾ pk Lu digestive kex
- 40 gr smjör
- 500 ml þeyttur rjómi
- 300 gr Philadelphia rjómaostur (við stofuhita)
- 1,5 dl flórsykur
- 2 tsk vanillusykur
- 4 dl frosin hindber (afþýdd) (eða fersk)
- Fersk Driscolls hindber til skrauts
- Myljið kexið í matvinnsluvél/blandara/með kökukefli.
- Bræðið smjörið og blandið saman við kexið og setjið til hliðar.
- Þeytið rjómann upp í topp og geymið.
- Þeytið saman rjómaost, flórsykur og vanillusykur þar til létt.
- Blandið þeytta rjómanum varlega saman við rjómaostablönduna.
- Skiptið blöndunni í tvær skálar, 2/3 í aðra og 1/3 í hina.
- Maukið afþýddu hindberin í blandara og hrærið varlega saman við 2/3 af rjómaostablöndunni með sleif.
Samsetning
(8-10 glös, fer eftir stærð)
- Setjið kúfaða matskeið af kexmylsnu í botninn á hverju glasi.
- Setjið bleiku blönduna í sprautupoka, klippið um 2 cm gat á pokann og skiptið á milli glasanna, gott er að jafna úr blöndunni með lítilli skeið svo hún verði þétt og falleg í glasinu.
- Setjið hvítu blönduna í sprautupoka og skiptið einnig á milli glasanna og þéttið.
- Skreytið með hindberjum og kælið.