Þessa frábæru Oreo samsetningu kom Guðrún samstarfskona mín með í vinnuna um daginn og auðvitað fékk ég hjá henni uppskriftina. Það er ekki beint hægt að kalla þetta köku því það þarf ekki að baka neitt og það er frábært hversu einfalt er að útbúa þessa dásemd.
Uppskriftina fékk hún á uppskrifasíðunni Kevin & Amanda og eiga þau allan heiðurinn af þessari frábæru hugmynd, það eina sem ég gerði var að útfæra og íslenska.
Oreo Tart Uppskrift
Botn uppskrift
- 2pk Oreo kex (2×14 kökur)
- 100gr smjör
- Bræðið smjörið og leggið til hliðar
- Myljið Oreo kökurnar í blandara/matvinnsluvél og hellið smjörinu svo yfir og blandið vel saman með sleif. Það er allt í lagi að hafa aðeins fleiri kexkökur ef þið viljið þykkari botn en þá líka bæta örlítið við af smjöri.
- Frystið í um 10 mínútur.
Karamella uppskrift
- 110gr smjör
- 150gr púðursykur
- 60ml rjómi (1/4 cup)
- Setjið smjör og púðursykur í pott. Hrærið stanslalust í og hitið við meðalhita þar til fer að bubbla. Bætið þá rjómanum varlega saman við og leyfið að bubbla við miðlungsháan hita í um 5 mínútur þar til karamellan þykknar.
- Látið karamelluna standa í pottinum í um 15 mínútur á meðan hún kólnar og hellið því næst yfir kaldan Oreo botninn.
- Setjið í frysti í um 30 mínútur og útbúið súkkulaðihjúpinn á meðan.
Súkkulaðihjúpur uppskrift
- 240ml rjómi (1 cup)
- 300gr suðusúkkulaði
- Saxið súkkulaðið smátt/notið súkkulaðidropa
- Hitið rjómann að suðu (varist þó að láta hann sjóða)
- Hellið heitum rjómanum yfir saxað súkkulaðið og látið standa í um 5 mínútur.
- Hrærið því næst upp í blöndunni þar til áferðin er orðin slétt og falleg.
- Hellið yfir karamelluna og setjið í frystinn að nýju í um 30 mínútur.
- Stráið að lokum grófu salti yfir tilbúna kökuna og berið fram með rjóma, ís, jarðaberjum eða því sem ykkur langar.