Marengstoppar eru fljótleg og bragðgóð lausn ef þið viljið baka fyrir hátíðarnar og eruð í tímahraki eins og svo margir á þessum tíma.
Lakkrístoppar eru fastir liðir eins og venjulega á þessu heimili en um síðustu helgi prófuðum við nokkrar nýjungar sem tókust flestar ansi vel líkt og þessi uppskrift hér.
Oreotoppar
- 3 eggjahvítur (1dl hvítur á flösku)
- 200gr púðursykur
- 16 muldar Oreokexkökur
- Hitið ofninn 150°C
- Þeytið eggjahvíturnar örstutt og bætið því næst sykrinum út í.
- Þeytið í 5-8 mínútur eða þar til sykurinn er búinn að leysast upp.
- Setjið Oreokökurnar í poka og myljið með kökukefli.
- Blandið Oreomylsnunni varlega saman við marengsblönduna með sleif.
- Setjið kúpta teskeið af blöndunni á bökunarplötu klædda bökunarpappír.
- Bakið í 18-20 mínútur.