Á dögunum sá ég hugmynd af svipuðu jarðaberjatré á netinu og hreinlega varð að prófa að útbúa mína útfærslu af slíku. Ég verð að segja að ég er virkilega ánægð með útkomuna og finnst mér þetta frábær hugmynd yfir hátíðarnar. Þetta er ljúffengur eftirréttur og afar góð hugmynd fyrir sameiginleg boð þegar allir eiga að koma með eitthvað þar sem þetta er góðgæti í hollari kantinum og jafnt ungir sem aldnir elska. Ég fór á stúfana til að finna kork-keilu til að stinga berjunum í og eftir flandur í nokkrar föndurbúðir fann ég slíka sem var nægilega stór í Litir og föndur í Kópavoginum.
Jarðaberja jólatré
- 7 x 250gr öskjur af Driscoll‘s jarðaberjum (1750gr)
- 700-800gr dökkt súkkulaði (ég notaði TOM‘s 70% í þetta skiptið)
- 80gr hvítt súkkulaði
- Keila úr korki, um 30cm há
- Tannstönglar, álpappír og bökunarpappír
- Bræðið dökka súkkulaðið. Ég bræddi í skál og hellti svo ákveðnu magni í einu yfir í lítið glas til að ná að dýfa berjunum vel niður án þess að þurfa að halla þeim.
- Dýfið jarðaberjunum vel ofan í svo þau hjúpist nánast að fullu. Leyfið að leka vel af þeim (best ef þið hafið þolinmæði í að þau storkni nánast alveg).
- Raðið berjunum á bakka (með bökunarpappír undir) og kælið.
- Bræðið þá hvíta súkkulaðið, setjið í sprautupoka og klippið lítið gat á endann, rennið því fram og til baka yfir berin til að skreyta þau, kælið að nýju.
- Klæðið keiluna með álpappír og takið til tannstöngla.
- Stingið tannstöngli í keiluna og rennið beri upp á hann. Gott er að setja stærri berin neðst, svo þau miðlungs og nota síðan þau minnstu efst á keiluna.
- Reynið að raða eins þétt og þið getið en erfitt er þó að koma í veg fyrir að eitthvað sjáist í álpappírinn en það er líka allt í lagi.
- Ef þið viljið hafa stjörnu á toppnum er hægt að sprauta hvítu súkkulaði í stjörnulaga piparkökuform með bökunarpappír undir og frysta þar til hún storknar. Stingið síðan tannstöngli í stjörnuna og komið henni fyrir efst á keilunni.
Vá hvað þetta er flott!!