Ostakaka með bláum berjum
- ¾ pk Lu digestive kex
- 40 gr smjör
- 500 ml þeyttur rjómi
- 300 gr Philadelphia rjómaostur (við stofuhita)
- 1,5 dl flórsykur
- 2 tsk vanillusykur
- 4 dl Driscoll‘s bláber og brómber í bland (maukað)
- Bláber og brómber til skrauts
- Myljið kexið í matvinnsluvél/blandara/með kökukefli.
- Bræðið smjörið og blandið saman við kexið og setjið til hliðar.
- Þeytið rjómann upp í topp og geymið.
- Þeytið saman rjómaost, flórsykur og vanillusykur þar til létt.
- Blandið þeytta rjómanum varlega saman við rjómaostablönduna.
- Skiptið blöndunni jafnt í tvær skálar.
- Maukið berin og blandið varlega saman við annan helminginn af rjómaostablöndunni með sleif.
Samsetning
(8-10 glös, fer eftir stærð)
- Setjið kúfaða matskeið af kexmylsnu í botninn á hverju glasi.
- Setjið hvítu blönduna í sprautupoka/zip lock og skiptið á milli glasanna, gott er að jafna úr blöndunni með lítilli skeið svo hún verði þétt og falleg í glasinu og nái út í kantana.
- Stráið nokkrum berjum ofan á áður en berjablöndunni er sprautað þar yfir (skiptið einnig jafnt á milli og þéttið með skeið).
- Skreytið með berjum.