Á dögunum lét ég loksins verða að því að búa til Rice Krispies kransaköku. Henný vinkona mín var að ferma dóttur sína og ég ákvað að taka þetta verkefni að mér þrátt fyrir að hafa aðeins gert eina tilraun fyrir eins og tíu árum síðan!
Rut samstarfskona mín gaf mér uppskrift og svo skoðaði ég á netinu nokkrar aðrar og þær virtust allar vera mjög svipaðar. Ég hins vegar kláraði blönduna þegar ég var rétt hálfnuð svo ég endaði á að útbúa aðra uppskrift og kláraði hana nánast alla líka. Þetta er því uppskrift í stærri kantinum og kransakakan varð há og tignarleg alveg eins og ég vildi hafa hana. Hér fyrir neðan fáið þið því mína útgáfu af þessari hefðbundnu kransaköku sem alltaf slær í gegn.
Hringirnir voru mögulega í það blautasta en það er bara svo gott á bragðið að hafa blönduna þannig. Ef þið kjósið að láta sjást aðeins meira í Rice Krispies en súkkulaði getið þið tekið eins og 200gr af súkkulaði burt úr uppskriftinni eða sett aðeins meira Rice Krispies.
Rice Krispies kransakaka uppskrift
- 1000 gr hjúpsúkkulaði
- 2 litlar dósir sýróp (Lyle’s golden syrup 2x 454gr)
- 300 gr smjör
- 540 gr Rice Kripies
- Setjið allt nema Rice Krispies í stóran pott (ef þið eigið ekki nægilega stóran, skiptið þá uppskriftinni til helminga og útbúið í tvennu lagi. Ég mæli alveg eins með því svo blandan harðni ekki of mikið á meðan hringirnir eru kláraðir) og hitið við miðlungshita. Hrærið vel í blöndunni allan tímann og hækkið örlítið hitann í lokin og leyfið að “bubbla” í nokkrar sekúndur. Slökkvið þá á hellunni og leyfið hitanum að rjúka aðeins út.
- Bætið Rice Krispies út í í nokkrum skömmtum og blandið vel. Það gæti verið að það þurfi aðeins meira af Rice Krispies en varist þó að setja of mikið.
- Leggið plast yfir kransakökuformin og byrjið á því að setja í innsta og ysta hring í öllum formunum þar sem ekki er hægt að setja í öll 3 hólfin í einu (myndu klessast saman).
- Gott er að setja þau jafnóðum í frystinn á meðan þið útbúið næsta og þannig er hægt að losa þau þegar það kemur að miðjuhringnum í hverju formi.
- Best er að vera í einnota gúmmíhönskum og nota matarolíusprey á fingurna til að geta meðhöndlað volga blönduna betur. Þjappið saman góðum skammti af blöndu og mótið með fingrunum í hvern hring.
- Mótið hringina örlítið hærri en þið ætlið að hafa þá því gott er að leggja bretti/bók á hvern hring eftir mótun á meðan það er enn í forminu til að ná sléttara yfirborði (þannig verður auðveldara að raða þeim án þess að kakan halli).
- Leggið alla hringina á bretti/flatan flöt og geymið í kæli fram að samsetningu (í plasti).
- Það var smá eftir af blöndunni þegar ég var búin með alla hringina svo ég setti restina í lítil bréfform og voru þær ekki lengi að klárast á heimilinu.
- Hægt að raða hringjunum saman allt að 2-3 dögum áður en veislan fer fram svo lengi sem léttur poki umlykur kökuna og hún er geymd í kæli (líka hægt að láta hana standa við stofuhita en hitt öruggara).
- Setjið 2-3 góðar “doppur” af súkkulaðihjúp á milli laga til að hringirnir séu betur fastir þó svo þeir límist nokkuð vel saman án þess að nokkuð súkkulaði sé notað (mér fannst óþarfi að setja súkkulaði á milli allan hringinn og mér finnst fallegra að sleppa því).
- Skreytið að vild með því að dýfa skrauti í súkkulaðihjúp og halda svo við kökuna þar til storknar. Einnig er hægt að stinga lifandi blómum í kökuna hér og þar.
Þessa skreytti ég með hvítum og fjólubláum sykurmassablómum þar sem fjólublátt þema var í fermingunni.
2 Replies to “Rice Krispies kransakaka”