Nú er komið sumar og allir á ferð og flugi. Þessar stangir útbjó ég um daginn og passa vel í nestistöskuna hjá ungum sem öldnum.
Bláberjastangir (uppskrift frá All Recipes)
- 180 gr sykur (1)
- 1 tsk lyftiduft
- 400 gr hveiti
- 220 gr smjör við stofuhita
- 1 egg
- ¼ tsk salt
- Börkur og safi úr einni sítrónu
- 500 gr fersk bláber
- 90 gr sykur (2)
- 4 tsk kartöflumjöl
- Blandið sykri, lyftidufti og hveiti saman í skál.
- Setjið salt og sítrónubörk út í og blandið saman.
- Bætið þá egginu og smjörinu og hrærið með K-inu eða í höndunum þar til vel blandað.
- Setjið fersk bláber, sítrónusafa og kartöflumjöl í aðra skál og veltið berjunum upp úr blöndunni og leggið til hliðar.
- Spreyið um 20x30cm bökunarform með PAM og klæðið bökunarpappír.
- Þjappið helmingnum af deigblöndunni í botninn á forminu, hellið berjablöndunni þar yfir og myljið svo restina af deiginu yfir berin.
- Bakið við 180°C í um 45 mínútur eða þar til bakan fer að brúnast að ofan.
- Kælið og lyftið upp úr forminu til að skera í bita.
Hluti af stöngunum fór í box og inn í frysti og þar var hægt að ná í eina og eina eftir hentugleika.