Við mæðgur gerðum þetta bananabrauð fyrir bekkjarkvöld í skólanum fyrr í haust. Það var yndislega gott með ískaldri mjólk og súpereinfalt að útbúa.
Súkkulaði bananabrauð uppskrift
- 150 gr sykur
- 150 gr púðursykur
- 4 egg
- 260 gr brætt smjör
- 4 þroskaðir bananar
- 320 gr hveiti
- 50 gr bökunarkakó
- 3 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
- 1 tsk salt
- 3 tsk vanilludropar
- Hitið ofninn 175°
- Egg og báðar tegundir af sykri þeytt saman þar til létt og ljóst.
- Bananarnir stappaðir vel og bætt út í ásamt bræddu smjörinu.
- Því næst er öllum þurrefnum blandað saman og bætt saman við í nokkrum skömmtum.
- Að lokum fara vanilludropar út í blönduna.
- Smyrjið stórt hringlaga form m.gati í miðjunni (uppskriftin dugar annars í tvö minni brauðform) og hellið deiginu jafnt í formið.
- Bakið þar til prjónn kemur hreinn út eða í kringum 35 mínútur.
- Kælið örlítið og fallegt er að strá smá flórsykri yfir til skrauts.