
Sælgætisís uppskrift
- 6 egg aðskilin
- 130gr púðursykur
- 1 tsk vanillusykur
- ½ l þeyttur rjómi
- 200 gr Toblerone (100 gr brætt og 100 gr saxað)
- 100 gr Oreo (mulið)
- 100 gr Daim (saxað)

- Þeytið saman eggjarauður og púðursykur þar til létt og ljóst.
- Bætið vanillusykri út í ásamt bræddu Toblerone og blandið vel.
- Vefjið þeytta rjómanum því næst varlega saman við eggjarauðublönduna.
- Setjið saxað Toblerone, Daim og mulið Oreo í blönduna og vefjið saman.
- Að lokum eru eggjahvíturnar stífþeyttar og þeim vafið með sleikju saman við blönduna.
- Öllu hellt í form (smellurform gott ef gera á köku en annars hægt að nota hvað sem er og gera ískúlur þegar frosið).
- Plastið ísinn vel og frystið helst í sólarhring og berið síðan fram með heitri Toblerone sósu og þeyttum rjóma.
Heit Toblerone sósa
- 300 gr Toblerone (saxað gróft)
- ½-1 dl rjómi (eftir því hversu þykka þið viljið hafa sósuna)
- Setjið saman í pott og hitið við miðlungshita þar til bráðið saman. Takið af hellunni og leyfið aðeins að þykkna áður en sett er út á ísinn.

Share the post "Sælgætisís"