
Hollar haframjölskökur uppskrift
- 70 gr gróft haframjöl (sett í blandara og maukað í duft)
- 40 gr gróft haframjöl til viðbótar (ekki sett í blandara)
- 15 gr venjulegt haframjöl
- 1 tsk matarsódi
- 1 ½ tsk kanill
- ½ tsk salt
- 1 ½ tsk vanilludropar
- 1 stórt egg
- 4 msk púðursykur
- 50 gr kókosolía (brædd og kæld örlítið)
- 40 gr saxað 70% súkkulaði
- Nokkrir súkkulaðidropar til skrauts (má sleppa)

- Blandið saman haframjölsdufti, grófu og fínu haframjöli ásamt matarsóda, kanil og salti í eina skál.
- Í aðra skál má blanda saman egginu, vanilludropunum, púðursykrinum og bræddu kókosolíunni.
- Því næst má blanda hráefnunum úr báðum skálum saman með sleif og að lokum setja saxað súkkulaðið saman við.
- Gott er að plasta skálina með blöndunni og kæla í 20-30 mínútur til þess að auðveldara sé að móta kúlur.
- Hitið ofninn því næst í 175°C og klæðið bökunarplötu með bökunarpappír.
- Rúllið í kúlur (kúfuð teskeið fyrir hverja) og raðið á plötuna (athugið að kökurnar leka út við bakstur svo varist að raða of þétt).
- Setjið 1-2 súkkulaðidropa á hverja kúlu sé þess óskað og bakið í um 7-10 mínútur eða þar til kantarnir verða aðeins dekkri en miðjan.
- Þessi uppskrift gefur um 16-18 kökur svo hana má auðveldlega tvöfalda.
Share the post "Hollar haframjölskökur"