Þar sem við fjölskyldan elskum súkkulaðibitakökur sem og S’mores samsetningu kom ekki annað til greina en prófa þessa hugmynd eftir að hafa rekist á hana hjá „The Cookie Rookie“ á netinu. Ég reyndar gerði mitt eigið smákökudeig en það er lítið mál að skipta því út fyrir Betty Crocker eða annað tilbúið deig.
Smákökurnar
- 350 gr smjör við stofuhita
- 290 gr púðursykur
- 180 gr sykur
- 2 egg
- 2 eggjarauður (til viðbótar við eggin)
- 2 tsk vanilludropar
- 2 tsk matarsódi
- 4 tsk maísmjöl/kartöflumjöl
- 1 tsk salt
- 540 gr hveiti
- 300 gr suðusúkkulaðidropar
- Þeytið saman smjör og báðar tegundir sykurs þar til létt og ljóst (ég þeytti með K-inu).
- Bætið eggjum og eggjarauðum saman við og skafið vel niður á milli.
- Því næst fara vanilludropar, matarsódi, maísmjöl, salt og hveiti út í.
- Að lokum er súkkulaðidropum blandað saman við með sleif.
- Kælið í amk 4 klst eða yfir nótt.
- Búið til kúlu úr kúfaðri matskeið af deigi og pressið örlítið niður, bakið við 175°C í 10-12 mínútur.
Topping
- 1 poki mini sykurpúðar
- 200 gr súkkulaðihjúpur
- ½ pk Lu Digestive hafrakex sem búið er að mylja í blandara.
- Raðið nokkrum sykurpúðum á hverja köku og setjið undir grillið í örskamma stund. Mæli með að standa við ofninn þar sem sykurpúðarnir brenna auðveldlega, kælið.
- Bræðið súkkulaðið og setjið í eina skál, hafrakökumylsnu í aðra.
- Dýfið hverri köku hálfa leið í súkkulaðið og svo í hafrakökumylsnuna, raðið á bökunarpappír og leyfið súkkulaðinu að harðna.
Obbobbobb, hér fyrir neðan sjáið þið hvað gerðist hjá mér þegar ég reyndi að múltítaska á meðan ég grillaði sykurpúðana.
Mæli því með þið standið alveg yfir ofninum þar sem þetta tekur örskamma stund.