Langar þig til þess að læra að útbúa dásamlega köku í þessum stíl?
Fyrsta námskeiðið í nútímalegum kökuskreytingum verður haldið þann 30.september næstkomandi milli 14:00-18:00 og eru enn nokkur laus pláss, skráning á gotteri@gotteri.is
Ég aðeins búin að vera að leika mér til að undirbúa námskeiðið!
Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig jafna skuli kökubotna og skipta þeim, kremi er smurt á milli og hvernig hjúpa skal köku fyrir skreytingu. Kennd er svokölluð „watercolor effect“ aðferð með smjörkremi til að hjúpa kökuna. Því næst er súkkulaðiskraut útbúið og allir þátttakendur læra að útbúa ganaché og smyrja því á kökuna og hvernig hægt er að láta það leka fallega niður hliðarnar. Að lokum skreyta allir sína köku með frjálsri aðferð.
Frábær gæðastund fyrir alla áhugasama um kökuskreytingar, vinkonur, vini, mæðgur eða hvern sem er!
Verð er 14.900kr og fara allir heim með fullskreytta köku í lok námskeiðs.
Hér fyrir neðan eru síðan hugmyndir af veraldarvefnum sem hægt er að hafa í huga.
Ég vil endilega komast á námskeið í nútímalegum kökuskreytingum. Viltu láta mig vita þegar þú ert búin að ákveða dagsetningu í nóv.?
Kveðja
Margrét
Sæl Margrét, sendu mér endilega línu á gotteri@gotteri.is með netfangi og símanúmeri og þá set ég þig á biðlistann 🙂
Væntanlega verður aukanámskeiðið 12.desember.
Hvenær verður næsta námskeið? 🙂
Sæl Hildur
Næsta námskeið er 12.nóvember en því miður er orðið fullt á það námskeið.
Ég er að skoða að bæta við námskeiði eftir það í nóvember og mun auglýsa dagsetningu sérstaklega fljótlega svo fylgstu endilega með 🙂
Kær kveðja,
Berglind