Ég bakaði þessar bollakökur um daginn og voru þær alveg hreint dásamlega góðar. Þetta var mín fyrsta færsla hjá Gott í matinn og að sjálfsögðu er það íslenska silfurlitaða smjörið sem gerir þetta krem svona yndislega bragðgott!
Ég fór með nokkrar í hópahitting í skólanum og meira að segja Einar sem sagðist aldrei borða krem á köku fannst það æðislegt!
Súkkulaði bollakökur uppskrift
- 260 gr hveiti
- 220 gr bolli sykur
- 6 msk bökunarkakó
- 1 tsk salt
- 1 tsk matarsódi
- 3 egg
- 2 tsk vanilludropar
- 160 ml olía
- 230 ml kalt vatn
- Sigtið saman hveiti, sykur, kakó, salt og matarsóda, leggið til hliðar.
- Þeytið saman egg, olíu, vatn og vanilludropa þar til það verður létt í sér.
- Bætið þurrefnunum rólega samanvið og skafið vel niður á milli.
- Skiptið niður í um 20 bollakökuform og bakið við 180 gráður í 15-18 mínútur.
Súkkulaðismjörkrem
- 125 gr smjör (við stofuhita)
- 400 gr flórsykur
- 2 tsk vanilludropar
- 2 msk Maple sýróp
- 4 msk bökunarkakó
- Setjið öll hráefnin nema flórsykur og kakó í hrærivélarskálina og hrærið vel saman.
- Blandið flórsykri og kakó saman og bætið varlega útí blönduna, skafið niður á milli og hrærið þar til kremið er slétt og fellt.
- Kreminu sprautaði ég síðan á með stút 1M frá Wilton, stráði kökuskrauti yfir og setti eitt RISA Nóakropp á toppinn!
Ég mæli með þið prófið þessar!
Allt of fallegar til að hægt væri að velja fáar myndir 🙂
Sæl og takk fyrir flottar og girnilegar uppskriftir 🙂
Getur þú sagt mér hvar er helst að finna úrval af fallegum möffins formum og skrauti til að setja á kremið? Mér finnst takmarkað magn af þessu í boði í þessum helstu matvörubúðum sem ég fer í eins og Bónus og Krónunni.
Kv, Þórdís Fjóla
Sæl Þórdís Fjóla
Allt í köku er með mikið og fallegt úrval af formum og skrauti, myndi byrja á því að kíkja þangað 🙂