Þessi kaka er algjör BOMBA og svo svakalega páskaleg og fín!
Páskatertan 2018 uppskrift
Marengs
- 100 gr Til hamingju karamellu möndlur með súkkulaði og sjávarsalti
- 130 gr brætt suðusúkkulaði (kælt niður)
- 6 eggjahvítur við stofuhita
- ¼ tsk salt
- 350 gr sykur
- 2 tsk vanilludropar
- ½ tsk möndludropar
Fylling og skraut
- 700 ml rjómi
- 30 gr flórsykur
- 300 gr Til hamingju karamellu möndlur með súkkulaði og sjávarsalti
- Raspað suðusúkkulaði (um 40 gr)
Aðferð
- Hitið ofninn 110°C.
- Teiknið 3 x 20cm hringi á bökunarplötur (tveir komast fyrir á annarri og einn á hinni).
- Saxið möndlurnar niður og leggið til hliðar.
- Bræðið suðusúkkulaði og látið standa á meðan marengsinn er þeyttur.
- Þeytið saman eggjahvítur og salt þar til froða myndast og bætið þá sykrinum saman við í litlum skömmtum.
- Þeytið á hæstu stillingu þar til topparnir halda sér (nokkrar mínútur).
- Bætið þá vanillu- og möndludropum saman við og þeytið saman við.
- Hellið söxuðum möndlum í skálina og blandið saman við með sleif.
- Að lokum er bræddu suðusúkkulaði hrært varlega saman við með sleif en varist að hræra of mikið, fallegt er að hafa marmaraáferð á marengsinum.
- Bakið í 2 ½ klst og slökkvið þá á ofninum og leyfið marengsinum að kólna inn í honum áður en þið takið út.
Fyrir fyllinguna er rjómi og flórsykur þeytt saman og skipt í þrennt, smurt á milli botnanna og ofan á síðasta botninn. Þá er röspuðu súkkulaði og karamellumöndlum stráð yfir toppinn til skrauts
Best er að setja rjómann á milli að minnsta kosti sólahring áður en kökunnar á að njóta, þá verður hún meira djúsí og góð.
Þessar karamellu möndlur eru rugl góðar, hvort sem þær fara á köku eða einar og sér!