Mig hefur lengi langað til að eignast svona „gamaldags“ fallegan brauðkassa til að geyma brauð og bakkelsi í á borðinu. Þetta er alltaf í pokum uppi á borði hér hjá okkur og ef við setjum það ofan í skúffu með kexinu þá vill það oft gleymast þar og skemmast. Ég rakst á þessa fallegu brauðkassa frá Plint í gjafavöruversluninni Dimm og var ekki lengi að næla mér í einn slíkan.
Eitthvað þurfti auðvitað að baka í hann í hvelli og þar sem við fjölskyldan erum að reyna að halda okkur á mottunni í sætindunum nú með haustinu þá útbjó ég dásamlegt, hollt og gott múslíbrauð.
Stelpunum fannst brauðkassinn mjög svo spennandi og var algjört sport að laumast í hann og ná sér í sneiðar, Elín Heiða sagði í það minnsta að þetta væri besta brauð sem hún hefði smakkað (með vel af smjöri og osti reyndar á meðan við hin fengum okkur ost, grænmeti og harðsoðin egg í álegg) svo það er spurning hvort það sé uppskriftin eða brauðkassinn sem hafði þau áhrif?
Hér kemur því uppskriftin fyrir ykkur að prófa:
Múslíbrauð uppskrift
• 1 kg gróft spelthveiti
• 50 gr púðursykur
• 2 tsk matarsódi
• ½ tsk salt
• 7 msk Til hamingju múslí
• 4 msk Til hamingju fimm korna blands
• 4 msk Til hamingju sólblómafræ
• 1 l léttmjólk
1. Setjið öll þurrefnin saman í hrærivélarskálina og blandið saman.
2. Hellið mjólkinni saman við og hrærið með króknum.
3. Spreyið tvö brauðform með matarolíuspreyi og skiptið deiginu á milli.
4. Bakið við 180°C í 50-60 mínútur eða þar til brauðin fara að gyllast og prjónn kemur hreinn úr miðjunni þegar stungið er í brauðið.
Brauðkassarnir eru til í nokkrum litum og fannst mér virkilega erfitt að velja en endaði á því að velja lit sem heitir „Powder“ en hér fyrir neðan eru fleiri litir sem eru í boði og hægt að skoða þá á www.dimm.is