Mig hefur lengi langað til þess að útbúa svona ostakúlu. Svona lagað var mikið í tísku hér á árum áður og mér fannst tilvalið að gera tilraun í þessum efnum fyrir áramótin og mæli ég með að þetta verði tekið upp að nýju við ýmis tilefni, algjörlega frábær partýréttur.
Ostakúla með beikoni og pekanhnetum uppskrift
- 2 x 400 gr rjómaostur frá Gott í matinn
- 1 poki dressing mix sommer
- 50 gr rifinn Cheddar ostur
- 40 gr smátt saxaður vorlaukur
- 80 gr (c.a 12 sneiðar) stökkt beikon, mulið
- 120 gr saxaðar pekanhnetur
Aðferð
- Setjið rjómaost og dressing mix saman í hrærivélina og hrærið með K-inu þar til vel blandað. Dressing mix fæst í flestum matvöruverslunum og er þar sem salatdressingarnar eru.
- Bætið Cheddar osti, vorlauk (geymið samt um 1 msk til að setja utan á) og helmingnum af beikoninu saman við og blandið áfram.
- Setjið plastfilmu á borðið og setjið rjómaostablönduna ofan á. Vefjið plastinu utan um og myndið kúlu með því að þrýsta ostablöndunni saman. Kælið í að minnsta kosti klukkustund því það er auðveldara að rúlla kúlunni upp úr pekanhnetum þegar osturinn er aðeins stífari.
- Hellið pekanhnetum, restinni af beikoninu og 1 msk af söxuðum vorlauk í skál og hristið saman.
- Takið rjómaostakúluna því næst úr plastinu og rúllið upp úr hnetublöndunni þar til vel hjúpuð. Færið þá yfir á fallegan disk og berið fram. Kúluna má einnig plasta og geyma í kæli þar til hún verður borin fram.
- Berið fram með góðu kexi eða brauði.