Þessar krúttlegu skyrkökur útbjó ég um daginn fyrir Gott í matinn. Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að ég er mikið fyrir litla eftirrétti og geri mikið af slíku í stað þess að gera einn stærri. Hér kemur dásamleg útfærsla af skyrköku sem allir ættu að prófa.
Vanillu skyrkökur með karamellubráð uppskrift
Uppskriftin dugar í 18 litlar krukkur eða færri stærri ílát
Botn
- 1 pk Lu Bastogne Duo kex mulið
- 20 gr brætt smjör
Skyrkaka
- Ísey skyr með vanillubragði (stór dós)
- 500 ml rjómi
- 200 gr hvítt súkkulaði
- Fræ úr einni vanillustöng
Karamellubráð
- 20 stk stórar og mjúkar rjómakaramellur (t.d frá Karamel Kompagniet)
- 5 msk rjómi
- Karamellukurl
Aðferð
- Blandið saman kexi og smjöri og setjið góða teskeið í botninn á hverri krukku (meira ef notuð eru stærri ílát).
- Bræðið súkkulaðið og leyfið því að kólna aðeins.
- Þeytið rjóma og leggið til hliðar.
- Þeytið skyrið og skafið úr vanillustönginni út í og blandið vel.
- Blandið því næst bræddu súkkulaðinu saman við og að lokum rjómanum með sleikju þar til vel blandað. Skiptið á mill ílátanna.
- Bræðið karamellur og rjóma saman við meðalháan hita þar til karamellurnar eru uppleystar. Leyfið að kólna örlítið en hellið þó yfir skyrkökurnar áður en blandan verður of þykk.
- Skreytið með karamellukurli.
Þær voru svo fallegar að ég gat varla hætt að mynda þær!