Ostapasta með skinku



Alls kyns ostapasta hefur lengi verið í uppáhaldi á þessu heimili. Við skellum oftar en ekki í slíkt og þá sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Ég útbjó þetta skothelda pasta fyrir Gott í matinn um daginn og það sló í gegn hjá allri fjölskyldunni.

Það tekur enga stund að útbúa þennan rétt, hægt er að hafa hann sem kvöldverð eða sem veislurétt en þá hef ég sett hann í eldfast form, rifið ost yfir og hitað upp þar til osturinn bráðnar og gyllist.

Ostapasta með skinku 

Uppskrift

  • 250 g skrúfupasta
  • 250 g osta tortellini
  • 1 stk brokkolihaus
  • 1 rauð paprika
  • ½ laukur
  • 1 stk Mexíkóostur
  • 500 ml matreiðsurjómi frá Gott í matinn
  • 250 g skinka
  • Salt, pipar og hvítlauksduft eftir smekk
  • Olía til steikingar
  • Parmesan ostur til að rífa yfir

Aðferð

  1. Sjóðið báðar tegundir af pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  2. Saxið laukinn smátt og skerið brokkoli og papriku í hæfilega stóra bita.
  3. Steikið laukinn upp úr olíu, kryddið til með salti og pipar og bætið papriku og brokkoli saman við og vel af olíu. Steikið stutta stund þar til grænmetið fer að mýkjast og setjið þá yfir í skál.
  4. Rífið Mexíkóost niður með grófu rifjárni og sjóðið með rjómanum á pönnunni þar til osturinn er uppleystur. Kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti.
  5. Skerið skinkuna í teninga og setjið skinkuna, grænmetið og pastað út á pönnuna og blandið vel.
  6. Berið fram með rifnum Parmesan osti.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun