
Maðurinn minn átti afmæli í janúar og þetta er uppáhalds kakan hans. Ég baka hana alltaf í tilefni dagsins fyrir hann og skil ekki af hverju ég geri hana ekki oftar, hún er nefnilega svo einföld og svakalega góð.

Það eru aðeins 5 hráefni í þessari köku svo nú er engin afsökun að eiga ekki eitthvað gott með helgarkaffinu.
Uppskriftina fékk ég fyrir löngu hjá Hörpu Hrönn vinkonu minni og nú deili ég henni með ykkur.
Kakan uppskrift
• 4 eggjahvítur
• 140gr flórsykur
• 140 gr Til hamingju kókosmjöl
Kremið
• 100gr smjör
• 100gr suðusúkkulaði
• 60gr flórsykur
• 4 eggjarauður

Aðferð – kaka
1. Eggjahvítur og flórsykur þeytt vel saman.
2. Kókosmjölinu bætt varlega útí með sleif.
3. Bakað við 150°C í um 40 mínútur.
Aðferð – krem
1. Súkkulaði og smjör brætt saman í vatnsbaði, sett til hliðar.
2. Flórsykur og eggjarauður þeytt vel saman þar til létt og ljóst.
3. Súkkulaðiblöndunni hrært varlega saman við eggjablönduna með sleif og smurt yfir kökuna og svo kókosmjöli stráð yfir sem skraut.