Gamaldags vatnsdeigsbollur með sultu og rjóma



⌑ Samstarf ⌑
Vatnsdeigsbollur með hindberjasultu

Nú er rétt tæp vika í Bolludaginn og eflaust margir farnir að huga að bakstri. Hér eru á ferðinni dásamlega góðar vatnsdegisbollur með sultu og rjóma sem vert er að prófa!

Vatnsdeigsbollur með sultu og rjóma

Ég ákvað að útbúa hefðbundna og einfalda uppskrift af bolludagsbollum og ég get lofað ykkur því að þessar munu allir elska!

Hér voru nokkrir gestir um helgina og fengu þessar dásamlegu bollur 10 í einkunn frá öllum sem þær smökkuðu svo þið þurfið ekki að leita lengra eftir hinni fullkomnu uppskrift.

Gamaldags vatnsdeigsbollur
Vatnsdeigsbolla með hindberjasultu, rjóma, ferskum hindberjum og glassúr

Sulturnar frá Den Gamle Fabrik spila hér lykilhlutverk en þær passa einstaklega vel á bollur eða pönnukökur með rjóma. Ég notaði bæði jarðaberjasultuna sem og hindberjasultuna og er eiginlega erfitt að segja hvort önnur hafi verið betri en hin, báðar svo yndislega bragðgóðar.

Vatnsdeigsbollur með jarðaberjasultu
Vatnsdeigsbolla með jarðaberjasultu, rjóma, ferskum jarðaberjum og glassúr

Gamaldags vatnsdeigsbollur með sultu og rjóma

Vatnsdeigsbollur

Vatnsdeigsbollur


• 190 g smjör
• 375 ml vatn
• 190 g hveiti
• 6 egg

  1. Hitið ofninn á 180°C með blæstri.
  2. Hitið saman smjör og vatn í potti þar til smjörið er bráðið og leyfið aðeins að sjóða saman.
  3. Slökkvið þá á hellunni og setjið hveitið út í smjörblönduna og blandið vel með sleif, hrærið dágóða stund saman þar til deigið losnar frá köntunum.
  4. Færið deigið nú yfir í hrærivélina og notið K-ið á lægstu stillingu til að leyfa hitanum aðeins að rjúka úr.
  5. Pískið eggin saman í skál á meðan og bætið þeim síðan saman við í litlum skömmtum. Stundum duga 5 eða 5 ½ egg ef þau eru stór svo geymið að bæta restinni saman við þar til í lokin.
  6. Deigið á að vera teigjanlegt og ekki of þunnt, það verður að halda hæð þegar það er sett á bökunarplötuna.
  7. Best er að setja vel kúfaða teskeið (um það bil 2 tsk) af deigi með góðu millibili á bökunarplötu íklædda bökunarpappír. Fínt er að miða við um 15 bollur á hvora plötu, uppskriftin gefur um 30 bollur.
  8. Bakið bollurnar í 20-22 mínútur eða þar til þær eru vel gylltar og ekki opna ofninn á meðan því þá geta þær fallið.
Den Gamle Fabrik sultur

Fylling

• 500 ml þeyttur rjómi
• Jarðaberjasulta frá Den Gamle Fabrik
• Hindberjasulta frá Den Gamle Fabrik
• Fersk hindber og jarðaber (má sleppa)

  1. Smyrjið vel af sultu á neðri botninn á hverri bollu (15 með jarðaberja og 15 með hindberja).
  2. Sprautið rjóma ofan á sultuna og raðið ferskum berjum þar næst.
  3. Setjið lokið á og útbúið glassúrinn.

Glassúr

• 100 g brætt smjör
• 215 g flórsykur
• 3 msk bökunarkakó
• 3 tsk vanilludropar
• 2 msk heitt kaffi

  1. Setjið allt saman í skál og hrærið saman með písk þar til vel blandað.
  2. Setjið góða teskeið af glassúr ofan á hverja bollu og dreifið úr.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun