Döðlupizza



⌑ Samstarf ⌑
Pizza með döðlum

Eftir að ég smakkaði pizzu með döðlum í fyrsta skipti var ekki aftur snúið! Það sem þær fara vel með rjómaosti, pepperoni og rauðlauk, þið bara verðið að prófa þessa samsetningu. Líka þið sem eruð ekkert sérstaklega mikið fyrir döðlur almennt, það bara er eitthvað sem gerist þarna sem verður að smakka.

Pizza

Döðlupizza

Þessi uppskrift dugar í sex til sjö 12´´ pizzur sem henta vel fyrir tvær fjölskyldur eða fyrir eina mjög svanga sem vill eiga smá afgang daginn eftir

Botnar

  • 1050 g hveiti
  • 1 ½ pk þurrger (11,8 g pokarnir)
  • 3 tsk salt
  • 600 ml volgt vatn
  • 5 msk ólífuolía
  1. Blandið öllum þurrefnunum saman í hrærivélarskálina.
  2. Notið krókinn til að hnoða og hellið vatninu og matarolíunni saman við, hrærið svolitla stund.
  3. Deigið hringast upp á krókinn og þá er það tekið úr skálinni og hnoðað stutta stund í höndunum.
  4. Sett í stóra skál sem búið er að pensla með matarolíu og plast sett yfir.
  5. Leyft að hefast í eina klukkustund og þá er því skipt niður í 6-7 minni hluta. Auðvitað má líka gera ofnskúffustærð en þá dugar þetta deig í 4-5 slíkar pizzur.

Álegg

  • Pizzasósa
  • Rifinn ostur
  • Til hamingju saxaðar döðlur
  • 1 stk rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
  • Rjómaostur eftir smekk
  • 2-3 pk pepperoni
Döðlupizza

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun