
Á dögunum útbjó ég nokkrar girnilegar ketó uppskriftir fyrir Gott í matinn. Það var hún Solla vinkona mín sem er með Facebook síðuna Maturinn minn sem blessaði þær fyrir mig áður en ég þorði að segja þær væru 100% ketó þar sem þetta er klárlega ekki mín sterkasta hlið en hún er alveg með þetta á hreinu!

Þrátt fyrir að ég sé algjör kolvetnagrís verð ég að segja að þessi pizza var algjört dúndur og sló í gegn hjá öllum fjölskyldumeðlimum. Þessi uppskrift hentar því bæði þeim sem eru lágkolvetnamegin í lífinu sem og öðrum!
Pizza með ostabotni uppskrift
Botn
- 200 gr rifinn Óðals Cheddar ostur
Álegg
- 500 gr nautahakk
- Krydd: Chiliduft, paprikukrydd, salt, pipar, hvítlauksduft
- Iceberg
- Rifinn Óðals Cheddar ostur
- Sýrður rjómi frá Gott í matinn
- Guacamole
- Salsasósa
- Ferskt kóríander
- Hitið ofninn 220°C
- Skerið niður grænmeti, rífið ost og hafið guacamole, salsasósu og kóríander tilbúið.
- Skiptið rifna ostinum (200 gr) niður í 6 hluta og mótið hringlaga „pizzabotn“ úr hverjum skammti.
- Bakið í 10 mínútur og leyfið að kólna/storkna á meðan annað er útbúið.
- Brúnið nautahakkið og kryddið.
- Hellið 50 ml af vatni saman við og leyfið að malla í 5-10 mínútur og setjið þá til hliðar.
- Setjið pizzuna saman: Salsa ofan á ostabotninn, því næst hakk, síðan kál, rifinn ost, sýrðan rjóma, guacamole og kóríander.
