Dásamlegar „dívur“



⌑ Samstarf ⌑
Ídýfa með pakkasúpu

Hér koma tvær hugmyndir af fljótlegum og góðum ídýfum, önnur er grænmetisdýfa og hin mexicodýfa.

ídýfa

Það þarf svo sannarlega ekki alltaf að vera flókið og þessar tvær voru algjört dúndur. Báðar afar einfaldar og bragðgóðar. Ef ykkur vantar snarl fyrir næsta partý, afmæli, saumaklúbb eða hvað annað þá eru þessar fullkomnar.

ídýfur

Þær fara vel einar og sér en einnig gaman að hafa þær saman til að bjóða upp á skemmtilega veislu fyrir bragðlaukana.

Mexicodýfa uppskrift

  • 4 msk Mexico tómatsúpa frá TORO
  • 1 dós 18% sýrður rjómi (180 g)
  • 2 tsk lime safi
  • 1 msk saxað kóríander
  1. Blandið öllu saman í skál og pískið saman, berið fram með nacos flögum.
  2. Hægt er að hræra í dýfuna með smá fyrirvara og geyma hana í vel lokuðu íláti í ísskáp, hræra síðan aðeins upp í henni áður en hún er sett í skál.
mexico ídýfa

Grænmetisdýfa uppskrift

  • ½ poki blómkáls- og brokkolisúpa frá TORO
  • 1 dós grísk jógúrt (350 g)
  • 3 msk agave sýróp
  • 3 msk léttmjól
  1. Blandið öllu saman í skál og pískið saman, berið fram með fersku grænmeti, döðlum og valhnetum.
  2. Hægt er að hræra í dýfuna með smá fyrirvara og geyma hana í vel lokuðu íláti í ísskáp, hræra síðan aðeins upp í henni áður en hún er sett í skál.
grænmetisídýfa

Mér finnst svo mikil snilld að geta gert eitthvað svona fljótlegt og svo þarf að láta hugmyndaflugið ráða í eldhúsinu og það er hægt að nota pakkasúpur í ýmislegt annað en súpu.

ídýfa með grænmeti

Púrrulauksdýfan fræga hefur lengi verið við lýði og þá er blandað saman við gríska jógúrt/sýrðan rjóma púrrulaukssúpu frá TORO. María á Paz útbjó einmitt útfærslu af einni slíkri til að hafa sem ídýfu með dásamlegum kjötbollum og þið getið fundið uppskriftina frá henni hér.

Megið endilega fylgja Gotterí á INSTAGRAM en þar eru allar myndir á einum stað til að skoða!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun