
Þessi máltíð er eitt það allra besta sem hægt er að hugsa sér!
Stefán vinur okkar og meistarakokkur á heiðurinn af þessari samsetningu og frá því hann bauð okkur fyrst í þennan lúxus fyrir mörgum árum höfum við eldað þetta ansi oft og deilt áfram til vina og ættingja þar sem allir sem þetta smakka vilja vita meira.

Leyndarmálið á bak við silkimjúka nautalundina er án efa soyamarineringin en lundin er látin liggja í „soyabaði“ áður en hún er grilluð. Því lengur sem þið látið hana liggja, því meira skín soyabragðið í gegn en okkur hefur þótt mátulegt að hafa hana í marineringu í 30 mínútur.
Meðlætið er síðan ekki af verri endanum og allt þetta gerir himneska heild.
Soyamarineruð nautalund uppskrift
Fyrir um 6 manns
Nautalund
- 1,5 kg nautalund
- 1 flaska (150 ml) Kikkoman soyasósa
- Smjör
- Pipar
- Snyrtið sinar af nautalundinni og leyfið henni að ná stofuhita.
- Hringið lundina í skál og hellið soyasósunni yfir svo hún þekjist vel.
- Leyfið kjötinu að liggja í soyasósunni í 30 mínútur og snúið einu sinni til að tryggja að soyasósan nái til allra hluta lundarinnar. Takið lundina þá upp úr og hellið afgangs soyasósunni.
- Grillið nautalundina þar til hún hefur náð þeim kjarnhita sem þið óskið eftir og nuddið með smjöri að minnsta kosti einu sinni á meðan hún er á grillinu. Sjá leiðbeiningar um kjarnhita hér.
- Piprið þá steikina eftir smekk og leyfið henni að standa í að minnsta kosti 10-15 mínútur þar til þið skerið hana niður.

Sveppasósa
- 250 g kastaníusveppir
- 50 g smjör
- ½ l rjómi
- 1 stk villisveppaostur
- 1 tsk púðursykur
- 1 tsk Kikkoman soyasósa
- 1 tsk fljótandi nautakraftur
- Salt, pipar, hvítlauksduft og Cayenne pipar eftir smekk
- Skerið sveppina niður í sneiðar og steikið í smjörinu við meðalháan hita þar til þeir fara að mýkjast/brúnast. Kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti.
- Rífið ostinn og hellið rjómanum saman við.
- Bætið púðursykri, soyasósu og krafti saman við og smakkið til með salti, pipar og cayenne pipar.
- Gott er að leyfa sósunni að malla en hana má líka bera strax fram.

Salat
- 1 poki klettasalat
- ½ granatepli
- Brómber
- Fetaostur
- Til hamingju ristaðar og saltaðar kasjúhnetur
- Saxið niður hneturnar og náið fræjunum úr granateplinu.
- Hellið klettasalati í skál, setjið fetaost yfir og blandið öllu saman.

Kartöflur
- 2-3 sætar kartöflur
- Ólífuolía
- Maple sýróp og pipar
- Berið ólífuolíu á kartöflurnar, leggið á bökunarpappír og bakið í 200°C heitum ofni þar til þær verða mjúkar í gegn.
- Skerið hverja kartöflu niður í 2-3 hluta, raðið á disk, hellið maple sýrópi yfir og piprið.

Beikonvafinn aspas
- 1 búnt ferskur aspas
- 1 beikonbréf
- Maple sýróp og pipar
- Skerið neðsta hlutann af aspasinum og vefjið inn í beikon.
- Grillið eða bakið í ofni þar til beikonið verður stökkt.
- Hellið maple sýrópi yfir og piprið.

Já elskurnar mínar hér hafið þið mögulega nýju uppáhalds uppskriftina ykkar að hinni fullkomnu máltíð!
Verði ykkur að góðu og munið eftir INSTAGRAM reikningnum hjá Gotterí.
