Marengsbomba í mörgum lögum



⌑ Samstarf ⌑
Marengsbomba

Þessi dásamlega kaka er geggjuð! Það þarf ekkert að fara frekari orðum um hana og á þessum ofurfallega kökudiski frá Húsgagnahöllinni varð hún enn fallegri og eiginlega bara fullkomin!

Marengs

Það er ekkert mál að útbúa þessa dásemd en það tekur auðvitað smá tíma að gera kökur í svona mörgum lögum svo ég mæli með að baka botnana með smá fyrirvara og dúllast svo bara í restinni þegar nær dregur í undirbúningi. Mér fannst kakan betri eftir að hafa fengið að vera í kæli í að minnsta kosti sólahring.

IVV kökudiskur á fæti

Það komu tvær konur til mín á námskeið í vor með þennan kökudisk. Ég er auðvitað algjörlega forfallinn kökudiskasafnari og fannst þessi svo elegant og fallegur að ég vissi að ég yrði að eignast hann! Hann fæst í Húsgagnahöllinni í Reykjavík og kostar aðeins 5990kr. Ég mæli því sannarlega með því að þið náið ykkur í eintak já eða blikkið einhvern sem gæti verið í vandræðum með jólagjöf handa ykkur….það styttist heldur betur í jólin og þessi væri fullkomin jólagjöf!

Súkkulaðimarengs

Diskurinn er 26 cm í þvermál og hentar því vel fyrir allar minni tertur. Ég er reyndar farin að baka mun oftar minni og hærri kökur því þær verða svo tignarlegar og fallegar með þeim hætti. Fallegur kökudiskur setur síðan punktinn yfir i-ið og ég verð að segja að kökudiskar á fæti eru mitt uppáhald! Hann er hins vegar einnig til stærri (33 cm í þvermál) fyrir þá sem slíkt kjósa og einnig með gylltu mynstri.

Hér kemur þessi dásamlega uppskrift fyrir ykkur að prófa og ég mæli svo sannarlega 100% með!

Marengsbomba í mörgum lögum

Marengs

  • 6 eggjahvítur
  • 1 tsk. hvítvínsedik
  • 270 g sykur
  • 1 msk. kartöflumjöl
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. Bökunarkakó
  • 80 g saxað suðusúkkulaði
  1. Þeytið eggjavítur og edik þar til það byrjar að freyða (geymið rauðurnar þar til þið gerið súkkulaðimúsina).
  2. Blandið saman sykri og kartöflumjöli og bætið saman við eggjahvíturnar í litlum skömmtum.
  3. Þeytið þar til stífir toppar hafa myndast og bætið þá vanilludropunum saman við og þeytið aðeins aftur.
  4. Sigtið að lokum bökunarkakóið yfir blönduna og hellið saxaða súkkulaðinu út í og vefjið saman með sleif.
  5. Teiknið 2 x 2 hringi (um 15 cm í þvermál) á sitthvora bökunarplötuna, íklædda bökunarpappír.
  6. Bakið við 170°C í 55 mínútur og leyfið að kólna í ofninum (best að gera þetta daginn áður og leyfa að liggja í ofninum yfir nótt).

Súkkulaðimús og rjómi á milli laga

  • 270 g suðusúkkulaði
  • 6 eggjarauður
  • 5 msk. sykur
  • 400 ml rjómi (skipt í 200 og 200 fyrir músina)
  • 600 ml af rjómi (til að nota sér fyrir utan músina)
  • Hindber og saxað súkkulaði til skrauts
  1. Bræðið suðusúkkulaðið og leggið til hliðar.
  2. Setjið eggjarauður, 200 ml af rjóma og sykur í skaftpott og þeytið saman.
  3. Hitið eggjablönduna við meðalhita þar til hún þykknar, takið þá af hellunni.
  4. Hrærið brædda suðusúkkulaðið saman við, hellið blöndunni í skál, plastið og setjið í kæli í að minnsta kosti klukkustund.
  5. Þeytið þá 200 ml af rjóma og vefjið í nokkrum skömmtum saman við súkkulaðiblönduna, plastið þá að nýju og kælið aftur í klukkustund.
  6. Hér má þeyta 600 ml af rjóma, hræra aðeins upp í súkkulaðimúsinni og taka til skrautið.

Samsetning

  1. Setjið smá súkkulaðimús á botninn á kökudiskinum til þess að festa marengsinn.
  2. Leggið þá fyrsta marengsbotninn á diskinn og dreifið óreglulega út ¼ af músinni og þeytta rjómanum.
  3. Endurtakið þar til fjögur lög hafa myndast.
  4. Skreytið þá með ferskum hindberjum og söxuðu súkkulaði.
  5. Best er að geyma kökuna í kæli í nokkrar klukkustundir eða yfir nótt áður en hún er borin fram því þá mýkist marengsinn upp.
Súkkulaðimarengs

Þennan fallega kökudisk og annað úrval af vörum í IVV Special línunni má nálgast á heimasíðu Húsgagnahallarinnar.

Ég rak augun í þessi fallegu glös hér þegar ég var að finna til linkinn fyrir ykkur…

…og þau eru klárlega komin á jólagjafaóskalistann!

Marengsbomba

Þið megið síðan endilega fylgja Gotterí á INSTAGRAM líka

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun