
Í tilefni af „OSTÓBER“ hjá MS útbjó ég þennan dásamlega pestóhring með ostadýfu og er uppskriftina að finna á Gott í matinn sem og hér á síðunni.

Ég hef lengi ætlað að útbúa eitthvað í þessum dúr og þetta heppnaðist svo æðislega vel. Allir á heimilinu elskuðu þetta þannig að ég hugsa ég haldi áfram svipuðum tilraunum.

Þetta er tilvalið ef það á að gera vel við fjölskylduna og einnig myndi þetta sóma sér vel á veisluborðinu! Hægt væri að útbúa þetta fyrr um daginn og baka síðan bara rétt fyrir veisluna sjálfa ef þannig stendur á.

Pestóstangir með ostadýfu
Deig
- 350 g hveiti
- ½ pk. þurrger (um 6 g)
- 1 tsk. salt
- 200 ml volgt vatn
- 2 msk. ólífuolía
Ostur og fylling
- 1 stk. Dala hringur
- 1 lítil rauð pestókrukka (um 180 g)
- 1 bréf hráskinka
- 1 stk. hvítlauksrif
- Rifinn parmesanostur
- Egg til penslunar, ólífuolía og oregano
Deigið
(Athugið að það má einnig kaupa tilbúið pizzadeig, 2 botna)
- Blandið öllum þurrefnunum saman í hrærivélarskálina.
- Notið krókinn til að hnoða og hellið vatninu og matarolíunni saman við og blandið vel.
- Hnoðið svolitla stund og þegar deigið hringast upp á krókinn er það tekið úr skálinni og hnoðað stutta stund í höndunum.
- Því næst er það sett í stóra skál sem búið er að pensla með matarolíu og plast sett yfir og leyft að hefast í eina klukkustund.
- Hitið þá ofninn í 185° C.

Samsetning
- Skiptið deiginu til helminga og fletjið út hringi sem eru um 35 cm í þvermál (ég notaði trébakka til að skera út eftir).
- Leggið fyrri hringinn á ofnplötu með bökunarpappír og komið Dala hringnum fyrir á miðju deigsins í litlu eldföstu móti. Einnig má móta form úr álpappír og klæða það síðan að innan með bökunarpappír og leggja ostinn þar ofan í.
- Penslið deigið með vel af pestó og skerið hráskinkuna niður í strimla sem raðað er eins og sólargeislum þétt út frá ostinum (ég skipti niður í 20 hluta en það er í lagi að hafa aðeins fleiri/færri).
- Skerið gat í miðjuna á seinna hringlaga deiginu ykkar og lyftið því varlega ofan á hitt svo osturinn standi áfram uppúr í miðjunni, togið það til þar til það passar akkúrat ofan á hitt.
- Skerið á milli skinkustrimlanna til þess að aðskilja stangirnar, snúið upp á hvern bút og reynið að hafa jafnt á milli þeirra.
- Penslið pestóstangirnar með pískuðu eggi.
- Skerið hvítlauksrifið niður og stingið hér og þar í ostinn, penslið hann með ólífuolíu, rífið parmesanost yfir og setjið því næst oregano yfir.
- Bakið í ofninum í 10-15 mínútur eða þar til pestóstangirnar fara að gyllast.
- Takið út og dýfið nýbökuðum pestóstöngum í bráðinn ostinn.

Megið endilega fylgja Gotterí á INSTAGRAM