Apabrauð



Monkeybread

„Monkeybread“ eða apabrauð er eitthvað sem er afar vinsælt í Bandaríkjunum. Það er oft bakað í kökuformi og síðan hvolft eða það er bakað í eldföstu formi líkt og hér er sýnt.

Monkeybread

Ég fór á stúfana til að kanna af hverju þetta er kallað apabrauð. Hugmyndin var sú að þetta væri eitthvað sætt sem hægt væri að deila eins og fingramat og þannig borða apar matinn sinn oft á tíðum, hahaha, þar hafið þið það! Wikepedia lýgur nú varla!

Rúmfatalagerinn; eldfast mót

Þetta fallega eldfasta mót er hægt að fá í Rúmfatalagernum en þegar ég keypti það voru einmitt mjög mörg falleg eldföst mót til, ég átti alveg bágt með að velja. Kertastjakarnir og könglarnir fást einnig þar og ætla ég síðan að nota þessa fallegu köngla í jólaskreytingu.

Monkeybread í eldföstu móti

Namm þetta var svo hrikalega gott! Efri hæðin var með stökkum sykurhjúp á meðan sú neðri var öll mjúk eins og miðjan úr nýbökuðum kanelsnúð.

Apabrauð

Deig

  • 460 g hveiti
  • 50 g sykur
  • 1 pk þurrger
  • 1 tsk. salt
  • 180 ml mjólk
  • 60 ml vatn
  • 60 g smjör
  • 1 egg
  1. Hrærið saman hveiti, sykri, þurrgeri og salti.
  2. Bræðið smjörið í potti og hellið vatni og mjólk saman við þar til blandan velgist, varist þó að hún verði of heit fyrir gerið.
  3. Hellið smjörblöndunni saman við þurrefnin og byrjið að hnoða með króknum eða í höndunum, bætið egginu saman við.
  4. Það gæti þurft að bæta örlitlu af hveiti saman við ef deigið er of klístrað en setjið þá aðeins eina teskeið í senn.
  5. Þegar búið er að hnoða deigið vel saman má setja það í skál sem búið er að pensla með matarolíu, leggja viskastykki yfir og leyfa því að hefast í um 15 mínútur á meðan þið gangið frá og útbúið hjúpinn.

Hjúpur

  • 115 g smjör
  • 140 g sykur
  • 60 g púðursykur
  • 1 msk. kanill
  1. Bræðið smjörið og hellið í skál.
  2. Hrærið saman báðum tegundum af sykri og kanil í aðra skál og leggið til hliðar.

Glassúr

  • 80 g rjómaostur við stofuhita
  • 30 g brætt smjör
  • 220 g flórsykur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. mjólk
  1. Hrærið rjómaost og smjör saman.
  2. Bætið flórsykrinum saman við og því næst mjólk og vanilludropum.
  3. Hrærið þar til slétt og fellt.

Aðferð

  1. Rúllið deiginu í lengju, skiptið í 35-40 bita og rúllið í litlar kúlur.
  2. Smyrjið eldfast mót vel með smjöri.
  3. Rúllið hverri deigkúlu upp úr bræddu smjöri og síðan sykurblöndunni og raðið þeim óreglulega í formið. Gott er að nota ekki of stórt eldfast mót til þess að ná tveimur hæðum af kúlum, það gerir þetta enn girnilegra.
  4. Leggjið viskastykki laust yfir og leyfið kúlunum að hefast í um 45 mínútur (þær ættu nánast að tvöfalda stærð sína).
  5. Bakið við 180°C í um 25-30 mínútur eða þar til kúlurnar verða vel gylltar.
  6. Leyfið „apabrauðinu“ aðeins að kólna á meðan þið útbúið glassúrinn en því næst má dreifa honum óreglulega yfir og hafa afganginn í skál til hliðar til að hver og einn geti skammtað sér af vild.
Monkeybread

Þetta var ótrúlega skemmtilegt að útbúa og borða, mæli svo sannarlega með þessari uppskrift.

Monkeybread

Megið endilega fylgja Gotterí á INSTAGRAM

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun