Grískt Gyros



⌑ Samstarf ⌑
Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Mig hefur alltaf langað til að útbúa kebab frá grunni og fór á stúfana að skoða alls konar uppskriftir á alnetinu. Svo virðist sem Kebab, Gyros, Shawarma og fleira séu heiti á svipuðum mat frá mismunandi löndum. Mér leist svo vel á Tzatziki sósurnar sem ég rakst á og fylgja þær þessari útfærslu Grikkjanna. Ég ákvað því að grískt Gyros yrði fyrir valinu í þessari tilraunastarfsemi minni.

Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Útfærsluna af kjúklingnum sá ég í Tasty myndbandi og langaði mig svo að prófa að skera niður svona „fjall“ af kjúkling að ég mátti til með að prófa þá aðferð. Hins vegar er í góðu lagi að elda kjúklingalærakjötið á „hefðbundinn“ hátt í eldföstu móti og skera það síðan í ræmur en þá þarf að stytta eldunartímann um helming í það minnsta.

Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Svona leit þetta út eftir tveggja klukkustunda eldun. Neðst er 1/2 laukur sem pinnanum er stungið í og kjúklingnum síðan raðað á víxl ofan á hann. Ég fann ekki alveg nógu stóran lauk í búðinni til þess að „fjallið“ héldi jafnvægi svo ég setti þetta einnig ofan í lítið hringlaga eldfast mót og þá var þetta flott.

Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Ég er venjulega sú sem hætti að skoða uppskriftir sem hafa of mörg hráefni á listanum en stundum þarf einfaldlega að gera undantekningu. Þessi uppskrift er alls ekki flókin og fjöldi hráefna felst aðallega í mismunandi tegundum af kryddum sem eflaust leynast hvort eð er ofan í skúffu hjá mörgum.

Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Grískt Gyros

Fyrir um 6-8 manns

  • 8-12 stk. Hatting mini pizzabrauð (afþýdd)
  • Smjör til steikingar
  • 2 pk kjúklingalærakjöt (um 800-1000g) í maríneringu (sjá uppskrift að neðan)
  • 1 stór laukur (10 cm + í þvermál)
  • Grillpinni (um 25 cm langur)
  • Tzatziki sósa (sjá uppskrift að neðan)
  • Kirsuberjatómatar (niðurskornir)
  • Rauðlaukssneiðar
  • Romaine salat (niðurskorið)
  • Ferskur kóríander
  1. Byrjið á því að útbúa maríneringuna fyrir kjúklinginn með því að hræra öllum hráefnunum saman í skál.
  2. Takið kjúklinginn og fletjið hann aðeins út með buffhamri.
  3. Blandið kjúklingakjötinu því næst út í maríneringuna og leyfið að standa í að minnsta kosti klukkustund, allt í lagi að láta standa yfir nótt í vel plöstuðu/lokuðu íláti.
  4. Gott er að útbúa Tzatziki sósuna næst (sjá uppskrift að neðan) og leyfa henni að standa í ísskáp þar til allt annað er tilbúið.
  5. Til þess að elda kjúklinginn eftir maríneringu þarf að skera stóra laukinn til hálfs, stinga grillpinna í hann miðjan og koma lauknum fyrir á ofnskúffu/í eldföstu móti.
  6. Raðið því næst kjúklingakjötinu upp á grillpinnann á víxl og búið til nokkurs konar fjall af kjúkling.
  7. Eldið við 150°C í 2 klukkustundir og leyfið síðan að standa í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið skerið niður.
  8. Á meðan kjúklingurinn stendur er gott að steikja pizzabrauðin á pönnu við meðalhita upp úr smjöri.
  9. Síðan að lokum er að raða hráefnunum saman á mitt pizzabrauðið, tzatziki sósu (nóg af henni), kjúkling og grænmeti, klemma saman og njóta.

Marínering fyrir kjúkling

  • 530 g grísk jógúrt
  • 1 sítróna (börkur og safi)
  • 150 ml ólífuolía
  • 1 msk. salt
  • 3 pressuð hvítlauksrif
  • 1 msk. paprikuduft
  • 1 msk. saxaður ferskur kóríander
  • 1 tsk. oregano
  • ¼ tsk. svartur pipar

Tzatziki sósa

  • 500 g grísk jógúrt
  • 2 pressuð hvítlauksrif
  • ½ sítróna (safinn)
  • 1 msk. ólífuolía
  • ½ tsk. salt
  • ¼ tsk. pipar
  • 1 msk. saxað kóríander
  • 1 heil agúrka
  1. Setjið öll hráefnin saman í skál nema agúrkuna og blandið vel saman.
  2. Rífið agúrkuna með grófu rifjárni, setjið rifnu gúrkuna í hreint viskastykki/tusku og kreistið safann úr eins og unnt er. Þið endið með gott lófafylli af rifinni gúrku og henni má þá blanda saman við jógúrtblönduna og kæla fram að notkun.
Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Smjörsteikt pizzabrauðin urðu dúnmjúk og dásamleg við pönnusteikinguna og þessi máltíð sló algjörlega í gegn. Til að áætla magn þá voru hér fullorðnir að borða tvö stykki af Gyros á meðan krökkunum dugði eitt.

Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Namm þetta var svoooo gott, ég er í það minnsta klárlega til í að gera þetta aftur mjöööög fljótlega.

Grískt Gyros með tzatziki sósu og grænmeti úr pizzabotnum

Megið endilega líka fylgja Gotterí á INSTAGRAM

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun