
Þessi réttur er klárlega hollustan uppmáluð um leið og hann er alveg frábær hversdagsmatur, síðan er æðislegt ef það er afgangur að grípa með í nesti daginn eftir.

Hann er ofur einfaldur og ég get lofað því að þennan rétt viljið þið gera reglulega eftir að þið hafið prófað hann einu sinni!

Bygg með kjúkling og grænmeti
- 5 dl bygg
- 3 kjúklingabringur
- 1 brokkolihaus
- 1-2 laukar (eftir stærð)
- 500 g gulrætur (hér var ég með marglitar)
- Ólífuolía til steikningar
- Salt, pipar, hvítlaukskrydd og kjúklingakrydd eftir smekk
- 3 tsk. soyasósa
- Skerið brokkoli niður, gulrætur í strimla og lauk í sneiðar.
- Steikið kjúklingabringurnar snöggt á pönnu aðeins til að brúna þær, kryddið með kjúklingakryddi og færið yfir í eldfast mót og inn í ofn í 20 mínútur á 180°C og leyfið þeim svo aðeins að hvíla áður en þið skerið þær niður.
- Steikið á meðan brokkoli og gulrætur upp úr vel af ólífuolíu og kryddið til með salti, pipar og hvítlauksdufti. Hellið síðan nokkrum matskeiðum af vatni á pönnuna og leyfið því að gufa upp, þannig mýkið þið aðeins grænmetið. Takið það síðan af pönnunni og leggið til hliðar.
- Sjóðið bygg samkvæmt leiðbeiningum á pakka og steikið laukinn þar til hann mýkist.
- Skerið kjúklingabringurnar í strimla og blandið að lokum öllu saman á pönnunni, kryddið meira ef ykkur finnst þess þurfa og blandið soyasósunni saman við.

Ég elska að elda og leggja á borð þegar ég á ný og falleg búsáhöld eins og þessi hér. Hér eru á ferðinni vörur sem allar fást í Húsgagnahöllinni og þar er heldur betur mikið úrval af dásamlegheitum. Það fást flestar vörur í vefversluninni þeirra og svo eru reglulega skemmtileg tilboð í gangi. Þessa dagana eru einmitt danskir dagar og þá er 20% afsláttur af Broste, Bitz og fleiri frábærum vörumerkjum svo ég hvet ykkur til að nýta ykkur það.
Vörurnar sem þið sjáið hér í færslunni eru eftirfarandi:
- Bitz diskur 27 cm
- Bitz diskur 21 cm
- Bitz salatskál
- Eightmood Woodley hnífapör
- Riverdale Elegance vínglas
- Nordal Rill vasi
- Broste tauservíettur

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM