
Það elska flestir sem ég þekki heita ostadýfu og mat með mexíkó ívafi, ég er þar engin undantekning svo nú var ekkert annað í stöðunni en bretta upp ermar og finna upp á einhverju sniðugu á nýju fallegu Lodge pönnuna mína og úr varð ein besta nachosdýfa sem ég hef prófað!

Ég hef lengi ætlað að fá mér steypujárnspönnu en einhverra hluta vegna ekki látið verða af því fyrr en nú. Járnpönnurnar frá Lodge fást í versluninni HRÍM og eru til í ýmsum stærðum og gerðum. Ég átti erfitt með að velja en ákvað að taka 26 cm pönnuna sem mína fyrstu járnpönnu þar sem hún er nógu stór fyrir mat en samt nógu lítil fyrir snarl og bakkelsi.

Lodge pönnurnar eru þannig úr garði gerðar að með réttri meðhöndlun geta þær gengið í ættir. Gott er að þvo þær og þerra eftir hverja notkun og bera reglulega á þær matarolíu með eldhúspappír til að halda þeim glansandi og viðloðunarfríum. Það var svoooo margt sem mig langaði að prófa að elda og baka á þessari dásemdar pönnu en ákvað að byrja á þessari súpergóðu nachosdýfu sem mun engan svíkja. Fullkomin fyrir kósýkvöldið, saumaklúbbinn eða hvað sem er! Hugmyndina sá ég á vefsíðu sem heitir Best Recipe Box og útfærði ég hana örlítið eftir mínu höfði.

Nachosdýfa með osti og hakki
- 200 g nautahakk
- 4 x vorlaukur eða ½ púrrulaukur
- 2 x ferskt chili
- 2 x ferskt jalapeño
- 230 g rjómaostur
- 180 g majónes
- 200 g rifinn cheddar ostur (+ meira ofan á í lokin)
- 2 msk. Tacokrydd
- Salt, paprika, chillikrydd eftir smekk
- Ólífuolía til steikingar
- Tómatar, ólífur, vorlaukur og kóríander sett ofan á þegar ídýfan kemur úr ofninum.
- Steikið nautahakkið upp úr olíu, kryddið með tacokryddi, papriku, chilli og salti.
- Saxið vorlauk, chili og jalapeño smátt niður og steikið í lokin með hakkinu.
- Blandið þá rjómaosti, majónesi og rifnum osti út á pönnuna og hrærið þar til allur ostur er bráðinn, kryddið til eftir smekk.
- Stráið rifnum cheddar osti yfir í lokin og bakið í 190° heitum ofni í um 15 mínútur.
- Leyfið hitanum aðeins að rjúka úr og skerið niður vorlauk og tómata og setjið yfir ásamt ólífum og ferskum kóríander. Njótið með stökkum nachosflögum.

Namm þetta var svoooooo gott! Það er ýmislegt fleira sem er á uppskriftarlistanum mínum fyrir þessa pönnu og svo megið þið endilega senda mér hugmyndir um hvað þið viljið fá að sjá galdrast fram með henni!
Pannan hitnar jafnt og því er algjör snilld að fjárfesta í hlíf á skaftið til að geta tekið hana út á auðveldari hátt.

Þið megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM