
Ég legg ekki meira á ykkur fyrir þessa páska!

Hér er á ferðinni alveg svakaleg marengsterta með brögðum úr ólíkum áttum sem munu kitla bragðlaukana. Piparmynta, karamella og hindber eru hreinlega dásamleg blanda og nauðsynlegt að prófa eitthvað aðeins öðruvísi reglulega.

Piparmyntumarengs með karamellu og berjum
Marengs
- 4 eggjahvítur
- 170 g púðursykur
- 170 g sykur
- 25 stk Marianne súkkulaðifylltir piparmyntumolar frá Fazer (rúmlega 1 poki)
- Hitið ofninn í 110°C og teiknið 3 hringi um 18 cm í þvermál á bökunarpappír á bökunarplötu (ég kom 2 fyrir á einni plötu og setti þann þriðja á sérplötu).
- Þeytið eggjahvíturnar þar til þær byrja að freyða.
- Bætið þá sykrinum saman við í nokkrum skömmtum og stífþeytið.
- Saxið brjóstsykurinn á meðan niður og vefjið honum að lokum saman við marengsinn.
- Skiptið niður á hringina þrjá og jafnið við útlínurnar.
- Bakið í 80 mínútur, slökkvið á ofninum og leyfið marengsinum að kólna inn í ofninum.
Karamellusósa
- 300 g Dumle karamellur
- 5 msk. rjómi
- Setjið saman í pott og bræðið, takið af hellunni og leyfið að ná stofuhita áður en þið setjið á milli laga.
Fylling
- 25 stk Marianne súkkulaðifylltir piparmyntumolar frá Fazer (rúmlega 1 poki)
- 600 ml rjómi
- 125 g Driscolls hindber (maukuð)
- Karamellusósa (sjá uppskrift hér að ofan)
- Driscolls hindber og brómber til skrauts og á milli laga (ef vill)
- Saxið brjóstsykurinn smátt niður og leggið til hliðar.
- Stífþeytið rjómann og vefjið maukuðu hindberjunum og söxuðum piparmyntumolunum saman við.
Samsetning
- Marengsbotn
- Karamellusósa
- Rjómi og ber
- Endurtakið 2 x í viðbót og endið á því að strá smá söxuðum Marianne brjóstsykri eða súkkulaði yfir í lokin

Marianne molarnir fást meðal annars í Hagkaup, Nóatúni og Fjarðarkaup.

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM