Djúsí bbq kjúklingasamloka



⌑ Samstarf ⌑
Djúsí bbq kjúklingasamloka sem hægt er að útbúa heima

Eftir túristaflakk í góða veðrinu um helgina var komið að því að útbúa eitthvað gómsætt í matinn. Hér eru á ferðinni hrikalega djúsí og góðar samlokur sem runnu ljúflega niður hjá fjölskyldunni í gær eftir skemmtilega helgi.

Djúsí bbq kjúklingasamloka sem hægt er að útbúa heima

Það er ofureinfalt að útbúa þær og sérlega ef þið mynduð notast við tilbúinn kjúkling. Ég leyfði kjúklingnum hins vegar að malla á meðan ég var að dunda mér í gær, hvíldi hann vel og tætti svo niður þegar það kom að því að setja samlokuna saman.

Djúsí bbq kjúklingasamloka sem hægt er að útbúa heima

Djúsí bbq kjúklingasamloka

Uppskrift dugar í 6 samlokur

  • 12 x Hatting mini pizzabotnar (2 pakkar)
  • Hvítlaukssmjör (sjá uppskrift að neðan)
  • 1 x rifinn heill kjúklingur
  • BBQ sósa
  • 1 x laukur
  • 2 hvítlauksrif
  • Havarti ostur í sneiðum (eða annar ostur)
  • Smjör til steikingar
  • Salt, pipar, kjúklingakrydd og Cheyenne pipar eftir smekk
  1. Kryddið kjúklinginn og setjið í steikarpott, eldið við 170°C í um 75-80 mínútur þar til hann er steiktur í gegn (einnig má kaupa tilbúinn grillaðan kjúkling).
  2. Takið skinnið af og rífið kjötið niður.
  3. Skerið laukinn niður í þunnar sneiðar, steikið upp úr smjöri þar til hann fer að mýkjast og bætið þá hvítlauknum saman við og steikið aðeins áfram.
  4. Bætið rifna kjúklingnum á pönnuna og sprautið bbq sósu yfir allt og blandið vel. Ég notaði um 6-8 matskeiðar af sætri bbq sósu en hér megið þið nota hvaða bbq sósu sem þið viljið og magnið fer einnig eftir smekk. Kryddið eftir smekk.
  5. Þegar allt er vel blandað má leggja kjúklinginn til hliðar og taka til pönnu til að steikja brauðin.
  6. Penslið báðar hliðar á pizzabotnum með hvítlaukssmjöri.
  7. Steikið aðra hliðina á brauðinu á pönnu og raðið ofan á hana ostsneiðum og rifnum bbq kjúklingi.
  8. Steikið aðra sneið og leggið steiktu hliðina að miðjunni (svo báðar hliðar að utan séu ósteiktar).
  9. Þegar búið er að raða öllum samlokunum saman má steikja samlokurnar í heilu lagi á pönnunni, smá stund á hvorri hlið þar til brauðið dökknar og verður aðeins stökkt að utan.
  10. Skerið til helminga og njótið með frönskum, kokteilsósu og bbq sósu.

Hvítlaukssmjör

  • 80 g smjör
  • 2 rifnir hvítlauksgeirar
  • 2 tsk. söxuð steinselja
  • Salt og pipar eftir smekk
  1. Setjið allt í pott og hrærið þar til smjörið er bráðið.
Djúsí bbq kjúklingasamloka sem hægt er að útbúa heima

Við eeeeeelskum þessa pizzabotna og það er hægt að gera svo margt annað við þá en útbúa pizzur. Við höfum notað þá fyrir bröns samlokur, gyros, ristað sem brauðsneiðar og nú fyrir pönnusteikta samloku, namm! Stelpurnar elska að gripið þetta og útbúið margarita pizzu þegar þeim hentar svo ef þið hafið ekki nú þegar prófað þessa snilld mæli ég sannarlega með!

Djúsí bbq kjúklingasamloka sem hægt er að útbúa heima

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM

One Reply to “Djúsí bbq kjúklingasamloka”

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun