
Það er svo gaman að útbúa heimagerðar ídýfur og þessi hér er sko alveg keppnis get ég sagt ykkur!

Beikon og laukídýfa
- 100 g beikon
- 2 stk laukar
- 3 msk. ólífuolía
- 2 msk. sykur
- 220 g Philadelphia rjómaostur
- 150 g sýrður rjómi
- 90 g rifinn cheddar ostur
- 2 stk smátt saxaðir vorlaukar
- Salt og pipar
- Eldið beikonið þar til það er vel stökkt og myljið/saxið niður.
- Skerið laukinn í ræmur og steikið upp úr ólífuolíu og sykri við meðallágan hita í um 20-30 mínútur þar til hann er mjúkur í gegn, kryddið til með salti og pipar. Saxið hann þá smátt niður og geymið.
- Hrærið rjómaost og sýrðan rjóma saman í skál og bætið næst restinni af hráefnunum saman við og blandið vel.
- Berið fram með Maarud snakki með salti og pipar.

Mmmmm þetta er sko hinn fullkomni partýmatur!

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM