
Þessi ostakaka fékk tíu í einkunn frá öllum sem hana smökkuðu!

Ríkt bragð af Toblerone súkkulaði með Oreo Crumbs í kökunni og Oreo kexi í botninum, toppað með rjóma! Held ég þurfi ekki að reyna að selja þetta neitt mikið frekar…..

Súkkulaði ostakaka
Botn
- 1 pk Oreo kex (16 kökur)
- 70 g brætt smjör
- Setjið kexið í matvinnsluvél/blandara og myljið vel niður.
- Setjið bökunarpappír í botninn á um 20 cm smelluformi og spreyið það síðan að innan með PAM (matarolíuspreyi).
- Hrærið smjörinu saman við og þjappið kexblöndunni í botninn á smelluforminu, kælið á meðan annað er útbúið.
Ostakaka
- 500 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
- 160 g sykur
- 2 msk. Cadbury bökunarkakó
- 3 gelatínblöð (+ 60 ml vatn)
- 230 g brætt Toblerone
- 2 tsk. vanilludropar
- 100 g Oreo Crumbs með kremi/saxað Oreo kex
- 250 ml þeyttur rjómi
- Leggið gelatínblöð í bleyti í köldu vatni í um 5 mínútur. Hitið þá 60 ml af vatni í potti og vindið þau út í, eitt í einu og hrærið vel á milli, hellið yfir í skál þegar blöðin eru uppleyst og leyfið að standa á meðan annað er útbúið.
- Bræðið Toblerone og leggið til hliðar.
- Þeytið saman sykur og rjómaost og bætið bökunarkakó saman við og blandið vel.
- Því næst fer brætt Toblerone, gelatínblanda og vanilludropar saman við, blandið vel saman og skafið niður á milli.
- Vefjið þeytta rjómanum varlega saman við og að lokum Oreo Crumbs, hellið yfir botninn og kælið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
Skreyting
- 350 ml þeyttur rjómi
- Cadbury bökunarkakó
- Falleg blóm, Toblerone, Oreo eða annað sem ykkur dettur í hug
- Setjið þeytta rjómann í sprautupoka með um 1 cm sverum hringlaga stút og sprautið bústnar „doppur“ yfir allan toppinn.
- Sigtið bökunarkakó yfir allt saman og skreytið að vild.

Mmmmmm, mæli með að þið prófið þessa við fyrsta tækifæri!

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM