Nautasalat



Nautasalat úr nautastrimlum frá Hraunsnefi

Um daginn fór ég í mína fyrstu (og sannarlega ekki síðustu) heimsókn á sveitahótelið Hraunsnef. Þar er hægt að kaupa kjöt beint frá býli og keyptum við vinkonurnar sitt lítið af hverju á heimleiðinni úr húsmæðraorlofinu okkar í Húsafelli. Kjötið er dásamlega gott og snilld að hægt er að fá pakka með nautastrimlum til að nota í salat, asíska rétti eða annað sniðugt.

Nautasalat úr nautastrimlum frá Hraunsnefi

Þórunn vinkona eldaði þetta nautasalat og notaði nautastrimlana. Hún deildi mynd af góðgætinu með okkur hinum og við fengum auðvitað allar strax uppskrift og nú er hún komin hingað inn fyrir ykkur að njóta!

Nautasalat úr nautastrimlum frá Hraunsnefi

Nautasalat

  • 500 g nautastrimlar frá Hraunsnefi
  • 80 g soyasósa
  • 70 g púðursykur
  • 1 ferskt chili (smátt saxað)
  • Blandað salat + klettasalat
  • Kirsuberjatómatar
  • Rauðlaukur
  • 50 g grænt pestó
  • 30 g ólífuolía
  • 20 g olía af fetaostinum
  • 2 hvítlauksrif (rifin)
  • ½ krukka fetaostur
  • Salt og pipar
  • Sesamfræ
  • Wasabi hnetur (muldar)
  • Majónes til að sprauta yfir í lokin
  1. Brúnið nautastrimlana stutta stund upp úr ólífuolíu, saltið og piprið, takið af pönnunni.
  2. Hitið saman púðursykur, soyasósu og chili á pönnunni þar til sykurinn er uppleystur og setjið kjötið saman við og leyfið að malla lágum hita á meðan annað er útbúið.
  3. Setjið salat, tómata og rauðlauk í fallega salatskál.
  4. Blandið pestó, ólífuolíu og hvítlauk saman í skál og setjið smá yfir salatið og hafið restina til að bera fram með salatinu.
  5. Setjið fetaost, sesamfræ og muldar Wasabi hnetur yfir grænmetið ásamt nautastrimlunum.
  6. Sprautið að lokum smá majónesi yfir allt og gott er að bera salatið fram með góðu brauði.
Nautasalat úr nautastrimlum frá Hraunsnefi

Þetta er algjör snilld. Hún Brynja var svo yndisleg að senda mér einnig hakk og hamborgara til að prófa og ég get ekki beðið eftir því að smakka meira af þessu frábæra kjöti.

Nautasalat úr nautastrimlum frá Hraunsnefi

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun