Suðræn grillspjót



⌑ Samstarf ⌑
Grillspjót með kjúkling, ananas, papriku, rauðlauk og Caj P grillolíu

Nú er ég í sumargír og litríkir og léttir réttir líta dagsins ljós í eldhúsinu! Þessi undursamlegu grillspjót ásamt meðlæti voru hinn fullkomni kvöldverður í vikunni og ef það er ekki rétti tíminn til að grilla þessa dagana þá veit ég ekki hvað.

Grillspjót með kjúkling, ananas, papriku, rauðlauk og Caj P grillolíu

Suðræn grillspjót

Fyrir um 4 manns

  • 1 poki Rose Poultry kjúklingalærakjöt (um 700 g)
  • Caj P Honey grillolía
  • 2 x rauðlaukur
  • 2 x paprika (ein rauð og ein græn)
  • ½ ferskur ananas

Dressing og meðlæti

  • 1 dós sýrður rjómi (180 g)
  • 2 msk. majónes
  • 1-2 tsk. Tabasco sósa
  • ½ lime (safinn)
  • 2 msk. kóríander (saxað)
  • Salt og pipar
  • Maísstönglar
  1. Afþýðið kjúklinginn og skerið niður í hæfilega stóra bita (ég tók hvert læri í 3 hluta).
  2. Setjið bitana í skál með um 8 matskeiðum af grillolíu, veltið þeim upp úr olíunni, plastið og leyfið að marinerast í kæli í að minnsta kosti klukkustund (yfir nótt væri líka í lagi).
  3. Skerið lauk, papriku og ananas í bita og þræðið það ásamt kjúklingabitum upp á grillspjót. Ef þið eruð að nota tréspjót er gott að leggja þau í bleyti í að minnsta kosti klukkustund (eða yfir nótt) áður en þau eru sett á grillið.
  4. Útbúið dressinguna með því að hræra öllu vel saman og kæla fram að notkun.
  5. Gott er síðan að sjóða maísstönglana á meðan spjótin eru grilluð.
  6. Spjótin má grilla á meðalheitu grilli í um 15 mínútur og pensla aðeins aftur yfir kjúklinginn með grillolíunni síðustu mínúturnar. Dressinguna má síðan nota bæði með spjótunum sjálfum og til þess að smyrja á maísstönglana.
Grillspjót með kjúkling, ananas, papriku, rauðlauk og Caj P grillolíu

Kjúklingurinn varð dásamlegur með hunangs grillolíunni frá Caj P og hentar hún afar vel fyrir ýmiss konar kjöt og grillmeti. Kjúklingalærakjötið verður einnig mýkra og betra að mínu mati á svona pinnum en bringur/lundir.

Grillspjót með kjúkling, ananas, papriku, rauðlauk og Caj P grillolíu

Sumarlegur og léttur kvöldverður!

Grillspjót með kjúkling, ananas, papriku, rauðlauk og Caj P grillolíu

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun