
Þessi réttur er uppáhaldsréttur Hörpu Karinar elstu dóttur minnar. Hún biður alltaf reglulega um að þetta sé eldað og mikið sem það er nú gott því við öll hin elskum þennan rétt jafn mikið. Hulda Sif 3ja ára borðaði til dæmis 3 lundir og bað sífellt um meiri sósu og hún er frekar mikill gikkur þegar kemur að borðhaldi svo þetta verða að teljast góð meðmæli.
Grillaðar kjúklingalundir og mexíkósósa
Fyrir um 4
Grillaðar kjúklingalundir
- 1 pakki kjúklingalundir
- 50 ml ólífuolía
- 4 msk. Teryaki BBQ sósa
- 1 tsk. hvítlauksduft
- 1 tsk. kjúklingakrydd
Aðferð
- Öllu nema lundum blandað saman í skál.
- Kjúklingalundum velt upp úr marineringunni, plastað og leyft að standa í kæli í að minnsta kosti klukkustund. Gott að gera þetta áður en kartöflurnar fara í ofninn því þær taka hátt í 1 ½ klukkustund í eldun.
- Grillið á heitu grilli í nokkrar mínútur á hvorri hlið og leyfið síðan að standa í um 10 mínútur.
Mexíkósósa
- 1 mexíkó kryddostur frá Gott í matinn
- 400 ml rjómi frá Gott í matinn
- 1 tsk. soyasósa
- 1 tsk. kjúklingakraftur
Aðferð
- Setjið um 200 ml af rjómanum í pott.
- Rífið ostinn út í og hrærið vel við meðalháan hita þar til osturinn er bráðnaður.
- Bætið þá restinni af rjómanum saman við ásamt soyasósu og krafti.
- Hitið að suðu og lækkið þá hitann vel niður og leyfið að malla, hrærið reglulega í á meðan.
Bakaðar sætar kartöflur
- 2 ílangar sætar kartöflur
- Ólífuolía
- Agave sýróp
- Pipar
Aðferð
- Hitið ofninn í 200°C.
- Berið ólífuolíu utan á kartöflurnar og bakið í um 1 ½ klukkustund eða þar til kartöflurnar verða vel mjúkar að innan.
- Takið út og skerið hvora kartöflu niður í 2-3 bita (eftir lengd/stærð).
- Gott er að setja vel af sýrópi og smá pipar yfir kartöfluna þegar hún er komin á diskinn.
Salat
- Blandað veislusalat
- ½ mangó skorið niður
- Um 20 vínber skorin niður
- Kóríander
- Um ½ krukka Dala fetaostur
- Um 2 lúkur mulið blátt Doritos

Mexíkó-ostur er annars sívinsæll á þessu heimili og Elín Heiða, miðjan mín, getur borðað heilan svona ost með góðu kexi á góðum degi!

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM