
Þessi fiskur er dásamleg tilbreyting frá hversdagsleikanum. Alls ekki svo flókin uppskrift en lúxus brauðraspurinn og steiktu kartöflurnar fara vel saman og köld sósa og bakaður aspas smellpassa með þessum rétti.

Gott er að undirbúa kartöflurnar fyrstar af öllu og koma þeim á pönnuna áður en þið snúið ykkur að fiskinum því það getur tekið lúmskt langan tíma að fá þær til að steikjast vel í gegn með þessum hætti. Auðvitað mætti líka alveg setja þær í ofnskúffu en það kemur einstaklega stökk og góð húð á þær með þessum hætti svo ég mæli með að þið prófið.

Ofnbökuð bleikja í sparifötunum
Fyrir um 5-6 manns
Bleikja og bakaður aspas
- 3 bleikjuflök (um 900 g)
- 1 búnt ferskur aspas
- 130 g brauðrasp
- 60 g rifinn Goðdala Reykir ostur
- 1 msk. saxað timian
- 1 msk. söxuð steinselja
- 2 rifnir hvítlauksgeirar
- 100 g brætt smjör
- Olía, salt og pipar
- Sítrónubátar
- Penslið bæði bleikjuflökin og aspasinn með ólífuolíu, saltið, piprið og leggið á bökunarpappír í ofnskúffu (ég notaði tvær skúffur, aðra fyrir fisk og hina fyrir aspas).
- Hitið ofninn í 200°C og útbúið brauðraspinn á meðan.
- Blandið brauðrasp, rifnum osti, kryddum, hvítlauk og bræddu smjöri saman í skál með höndunum þar til brauðraspurinn hefur drukkið í sig smjörið.
- Skiptið blöndunni þá jafnt yfir bleikjuflökin og restinni yfir aspasinn.
- Spreyið með matarolíuspreyi og bakið í heitum ofninum í um 15-20 mínútur.
Kartöflur
- 3 stórar bökunarkartöflur
- Salt, pipar, hvítlauksduft, timian
- Ólífuolía
- Flysjið kartöflurnar og skerið í litla teninga (um 1 x 1 sm)
- Steikið þær upp úr vel af olíu á meðalheitri pönnu í um 30 mínútur eða þar til þær eru mjúkar í gegn. Gott að krydda þær til eftir smekk og snúa reglulega til að þær festist ekki við pönnuna, bætið við olíu ef þurfa þykir.
Köld sósa
- 1 dós 18% sýrður rjómi frá Gott í matinn
- Safi úr ½ lime
- 2 msk. saxaður kóríander
- 1 rifið hvítlauksrif
- Allt sett saman í skál og hrært saman, borið fram með fiskinum.

Megið endilega líka fylgja Gotterí á INSTAGRAM