Daim ostakaka



Daim ostakaka með Lu kexi, berjum og blómum

Ostakökur, ostakökur, ostakökur…..ég elska ostakökur! Ég hef ekki tölu á þeim ostakökum sem ég hef útbúið í gegnum ævina en þessi hér er alveg fullkomin. Lu kexbotn, vanillu ostakaka með hvítu Toblerone og Daim, hreinlega blanda sem getur ekki klikkað!

Daim ostakaka með Lu kexi, berjum og blómum

Allar kökur verða síðan fallegri með blómum, það er svoooooo gaman að skreyta gómsætar kökur.

Daim ostakaka með Lu kexi, berjum og blómum

Daim ostakaka

Botn

  • 1 pakki Lu Bastogne kex
  • 60 g brætt smjör
  1. Kexið sett í matvinnsluvél og mulið fínt niður.
  2. Smjörinu hellt yfir kexið og blandað saman með sleif.
  3. Setjið smjörpappír í botninn á um 20 sm smelluformi og spreyið með matarolíuspreyi botn og hliðar.
  4. Hellið kexblöndunni í botninn, þjappið henni jafnt yfir hann og aðeins upp með hliðunum.
  5. Kælið á meðan þið útbúið fyllinguna.

Fylling og skreyting

  • 600 g Philadelphia rjómaostur við stofuhita
  • 150 g sykur
  • 100 g flórsykur
  • 200 g hvítt Toblerone (brætt)
  • 3 gelatínblöð (+ 60 ml vatn)
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 150 g gróft saxað Daimkurl (+ meira til skrauts)
  • 250 ml þeyttur rjómi
  • Bláber, hindber og fersk blóm til skrauts
  1. Leggið matarlímsblöðin í bleyti í kalt vatn í nokkrar mínútur.
  2. Hitið þá 60 ml af vatni að suðu og setjið matarlímsblöðin saman við, eitt í einu og hrærið á milli. Hellið síðan í skál og leyfið að ná stofuhita.
  3. Bræðið á meðan Toblerone og leggið til hliðar.
  4. Þeytið næst saman rjómaost, sykur, flórsykur og vanillusykur.
  5. Hellið matarlímsblöndunni saman við og því næst bræddu Toblerone.
  6. Blandið þá þeytta rjómanum varlega saman við með sleif og setjið að lokum Daim saman við og hellið í smelluformið, ofan á kexbotninn.
  7. Plastið og geymið í kæli í að minnsta kosti fjórar klukkustundir eða yfir nótt.
  8. Rennið hníf varlega hringinn á smelluforminu áður en þið losið kökuna úr og skreytið.
  9. Skreytið með ferskum blómum, hindberjum, bláberjum og Daimkurli.
Daim ostakaka með Lu kexi, berjum og blómum

Sumarleg, falleg og góð!

Daim ostakaka með Lu kexi, berjum og blómum

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun