
Humarpasta hljómar alltaf vel!

Hér er á ferðinni ofureinfalt humarpasta sem var undursamlegt.

Humarpasta
Pasta
- 500 g Dececco pastaskrúfur
- 2 x askja skelflettur humar frá Sælkerafiski (2 x rúmlega 300g)
- 1 laukur
- 3 hvítlauksrif
- 500 g kirsuberjatómatar
- 600 ml rjómi
- 2 lúkur rifinn parmesanostur
- 3 msk.söxuð steinselja
- 1 tsk. humarkraftur
- Smjör og ólífuolía til steikingar
- Salt, pipar og hvítlausduft
- Affrystið humarinn, skolið og þerrið.
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Steikið lauk og hvítlauk upp úr smjöri þar til það fer aðeins að mýkjast og bætið þá humrinum saman við. Kryddið með salti, pipar og hvítlauksdufti eftir smekk og setjið í skál um leið og humarinn er tilbúinn.
- Bætið þá ólífuolíu á pönnuna og setjið tómatana saman við (skerið þá fyrst til helminga). Steikið þá við meðalhita þar til þeir mýkjast aðeins og saltið og piprið.
- Hellið nú rjómanum yfir tómatana ásamt parmesanosti, steinselju og humarkrafti.
- Kryddið til með salti, pipar og hvítlausdufti.
- Þegar pastað er tilbúið má bæta því út í sósuna ásamt humrinum og ná upp smá hita að nýju.
- Best er síðan að bera pastað fram með rifnum parmesan og hvítlauksbrauði (sjá uppskrift að neðan).

Hvítlauksbrauð
- 1 stórt baguette brauð
- 100 g smjör
- 2 hvítlauksrif
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Rifinn ostur
- Skerið brauðið eftir því endilöngu og raðið á bökunarplötu.
- Bræðið smjör við vægan hita, rífið hvítlauksrifin út í pottinn og kryddið eftir smekk.
- Penslið vel af smjöri á brauðið og rífið næst ost yfir allt saman.
- Hitið við 200°C í um 7 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn.
- Skerið niður í sneiðar og berið fram með pastanu.

Rjómalöguð sósa með parmesan og tómötum fer virkilega vel með pastanum og humrinum. Að þessu sinni notaði ég marglita kirsuberjatómata en það var auðvitað meira fyrir útlitið en bragðið, það er að sjálfsögðu hægt að nota bara þessa rauðu litlu fallegu.

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM