
Bollakökur eru svo fallegar! Það er hægt að útbúa ýmsar tegundir af bollakökum en hér eru á ferðinni súkkulaði bollakökur með súkkulaði smjörkremi eins og þær gerast bestar!

Bollakökur eru virkilega fallegar á veisluborði sem og í fjölskyldukaffinu. Hér fær líka hver og einn sína köku svo allir ættu að vera glaðir með skammtinn, hahaha!

Súkkulaði bollakökur
Uppskriftin dugar í 16-18 bollakökur
Bollakökur
- 140 g hveiti
- 70 g Cadbury bökunarkakó
- 1 tsk. matarsódi
- 1 tsk. lyftiduft
- ½ tsk. salt
- 4 egg
- 150 g sykur
- 150 g púðursykur
- 120 ml olía
- 3 tsk. vanilludropar
- 180 ml súrmjólk
- Hitið ofninn í 170°C og gerið bollakökuform tilbúin. Best finnst mér að setja pappaform ofan í álform til að lögunin haldi sér betur.
- Setjið hveiti, kakó, matarsóda, lyftiduft og salt saman í skál, blandið saman og leggið til hliðar.
- Hrærið öllum öðrum hráefnum saman í skál og blandið þurrefnunum saman við í nokkrum skömmtum og skafið niður á milli.
- Skiptið deiginu á milli bollakökuformanna, fyllið þau rétt rúmlega til hálfs og bakið í um 18-20 mínútur.
Krem
- 260 g smjör við stofuhita
- 470 g flórsykur
- 60 g Cadbury bökunarkakó
- 50 ml rjómi
- ½ tsk. salt
- 2 tsk. vanilludropar
- Sigtið saman flórsykur og bökunarkakó og leggið til hliðar.
- Þeytið smjörið þar til það er létt og ljóst og bætið öðrum hráefnum saman við í nokkrum skömmtum, þurrefni og rjóma á víxl.
- Þegar silkimjúkt súkkulaðikrem hefur myndast má setja það í sprautupoka með stórum stjörnustút (til dæmis 1M frá Wilton) og sprauta vel af kremi á hverja köku.
- Fallegt er síðan að skreyta með kökuskrauti, sælgæti og brúðarslöri.

Fyrir þá sem eru að halda minni viðburði á næstunni þá er reyndar mjög sniðugt að bjóða upp á litlar eða stórar bollakökur því þá getur hver og einn tekið sinn skammt án þess að vera að nota hníf eða annað frá næsta manni, #covid.

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM