
Lax er sannarlega vinsæll á okkar heimili og oftar en ekki ef ég spyr hvernig fiskur á að vera í matinn, er sagt „bleikur fiskur“. Þennan lax veiddi maðurinn minn í Fnjóská í ágúst síðastliðnum svo það var klárlega kominn tími til að elda hann.

Lax með pestó og kartöflumús
Fyrir um 4-5 manns
Lax
- 2 laxaflök
- Sacla pestó „Wild Garlic“ (1 krukka)
- 30 g ljóst brauðrasp
- 40 g parmesan ostur
- Hitið ofninn í 175°C.
- Þerrið laxaflökin og leggið á bökunarpappír.
- Smyrjið með vænu lagi af pestó.
- Rífið parmesan ost fínt niður og blandið saman við brauðrasp, dreifið yfir pestóið.
- Bakið í um 12-15 mínútur, kveikið þá á grillinu og bakið áfram í nokkrar mínútur þar til brauðraspið fer að gyllast.
Kartöflumús
- 4-5 bökunarkartöflur (eftir stærð)
- 20 g smjör
- 1-2 msk. Sacla truffluolía
- 100-130 ml mjólk
- 2 rifnir hvítlauksgeirar
- Salt og pipar eftir smekk
- Sjóðið kartöflurnar og flysjið.
- Setjið þær aftur í pottinn ásamt smjöri, hvítlauk og um 100 ml af mjólk.
- Stappið með kartöflustappara og setjið meiri mjólk ef þurfa þykir og bætið truffluolíunni saman við.
- Smakkið til með salti og pipar.
Rósakál
- 1 poki frosið rósakál
- 20 g smjör
- Salt, pipar og hvítlauksduft
- Sjóðið rósakálið samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
- Hellið vatninu af og bætið smjöri í pottinn, kryddið með salti og pipar.
- Hellið í lítið eldfast mót og setjið í ofninn með laxinum síðustu mínúturnar (á grillið) til þess að fá smá stökka húð utan á rósakálið.

Það er alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt og pestó og „parmesankröst“ ásamt kartöflumús og rósakáli passar virkilega vel með laxinum.

Megið endilega fylgja Gotterí líka á INSTAGRAM