Hrekkjavökukakan 2020



⌑ Samstarf ⌑
Hrekkjavökukaka eða Halloweenkaka með Oreokexi og súkkulaði

Já krakkar mínir, það er víst að koma 31.október að nýju! Það þýðir bara eitt…..heimilið okkar verður aðeins appelsínugulara og meira spúkí en venjulega. Við erum búin að skera út grasker og langar síðan að skreyta aðeins meira fyrir utan þó svo engir krakkar komi í „Grikk eða gott“ þetta árið. Þessi kaka fór í það minnsta beint í frystinn og verður tekin fram hér á laugardaginn þegar stelpurnar mínar ætla að hafa gaman og klæða sig í búninga.

Hrekkjavökukaka eða Halloweenkaka með Oreokexi og súkkulaði

Það var að koma Hrekkjavöku Oreokex í búðirnar með appelsínugulu vanillukremi á milli og köngulóavef á kexinu sjálfu. Að sjálfsögðu ákváðum við að gera eitthvað skemmtilegt með það, enda þetta uppáhalds kex margra á heimilinu! Halloween kexið er til í Hagkaup, Krónunni, Melabúðinni og Fjarðarkaup en mér skilst það sé mögulega uppselt sums staðar!

Hrekkjavökukaka eða Halloweenkaka með Oreokexi og súkkulaði

Hrekkjavökukakan 2020

Botnar

  • 280 g hveiti
  • 390 g sykur
  • 70 g Cadbury bökunarkakó
  • 2 tsk. lyftiduft
  • 1 tsk. matarsódi
  • 1 tsk. salt
  • 3 msk. sterkt uppáhellt kaffi
  • 225 ml súrmjólk/ab mjólk
  • 110 ml matarolía
  • 3 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 225 ml sjóðandi vatn
  1. Hitið ofninn í 185°C.
  2. Sigtið næst öll þurrefnin í skál og blandið saman.
  3. Næst má setja kaffi, súrmjólk, matarolíu, egg og vanilludropa í skál og hræra síðan saman við þurrefnin.
  4. Að lokum má hella sjóðandi vatninu varlega saman við blönduna, hræra rólega og skafa vel niður á milli þar til slétt og fallegt deig hefur myndast (athugið að deigið er þunnt).
  5. Klippið bökunarpappír í botninn á 3 x 15 cm bökunarformum og spreyið síðan vel með PAM matarolíuspreyi.
  6. Skiptið deiginu jafnt á milli botnanna (gott að vigta deigið) og bakið í um 25 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.

Súkkulaðikrem

  • 125 g smjör við stofuhita
  • 500 g flórsykur
  • 50 g Cadbury bökunarkakó
  • 3 msk. sýróp
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 80 ml rjómi
  • Svartur matarlitur
  1. Þeytið smjörið þar til létt og ljóst.
  2. Bætið til skiptis blautum og þurrum hráefnum við smjörið, þeytið og skafið niður á milli þar til fallegt súkkulaðikrem hefur myndast.
  3. Bætið um 1-2 tsk. af svörtum matarlit í kremið á þessu stigið og blandið þar til jafn litur hefur myndast.

Vanillukrem

  • 125 g smjör við stofuhita
  • 500 g flórsykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 190 ml rjómi
  • Þeytið smjörið þar til létt og ljóst.
  • Bætið til skiptis blautum og þurrum hráefnum við smjörið, þeytið og skafið niður á milli þar til fallegt vanillukrem hefur myndast.

Skreyting

  • Um 2 pakkar af Halloween Oreo kexkökum
  • Svart og appelsínugult kökuskraut
  • Sykur-augu (fást til dæmis í Allt í köku og Hagkaup)

Samsetning

  1. Setjið svarta súkkulaðikremið í einn sprautupoka og vanillukremið í annan, gott er að hafa stóran stjörnustút á báðum pokum (t.d 1 M frá Wilton). Athugið að þá má líka setja bara hluta í pokana og hafa hluta áfram í skál ef þið viljið fremur setja kremið þannig á.
  2. Setjið fyrsta botninn á kökudisk, sprautið hring yst við kantinn með vanillukreminu og fyllið upp í að innan með súkkulaðikremi (þetta gert til þess að svarta kremið komi ekki í gegn þegar þið setjið það hvíta utan á kökuna), endurtakið með næsta botn og setjið loks þann þriðja efst.
  3. Sprautið svörtu kremi upp rúmlega hálfa kökuna og næst hvítu, setjið einnig hvítt krem ofan á kökuna.
  4. Dreifið úr með spaða og það er allt í lagi þó kremið blandist aðeins um kökuna miðja. Gott er að bleyta spaðann aðeins því þá er auðveldara að draga kremið til.
  5. Setjið svart og appelsínugult kökuskraut í skál, setjið reglulega skraut í lófann og leggið upp við neðsta hluta kökunnar. Gott er að hafa skál undir til að skrautið sem ekki festist við kökuna fari ekki út um allt.
  6. Festið næst augu og Halloween Oreokex hér og þar á hliðarnar. Gott er að sprauta smá auka kremi á kexkökuna áður en hún er fest en óþarfi er að gera það við augun.
  7. Að lokum má skreyta toppinn á kökunni með því að sprauta súkkulaðikreminu í toppa og setja eitt Halloween Oreokex alltaf á milli, strá síðan kökuskrauti yfir allt saman.
Hrekkjavökukaka eða Halloweenkaka með Oreokexi og súkkulaði

Þó svo það verði lítið um Hrekkjavökupartý eða rölt á milli húsa að sníkja nammi í ár er alveg hægt að gera sér glaðan dag, skreyta aðeins, fara í göngutúr og skoða skreytingar hjá öðrum og svo bara hafa kósýpartý heima með fjölskyldunni og horfa á skemmtilega Hrekkjavökumynd, gera hræðilegar veitingar eða annað slíkt.

Hrekkjavökukaka eða Halloweenkaka með Oreokexi og súkkulaði

Megið endilega líka fylgjast með á INSTAGRAM….þar kemur oft alls konar í Story sem ratar ekki hingað inn!

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun