
Það þarf sannarlega ekki að vera sumar og sól til þess að útbúa gómsætar snittur og fá sér fallegt rósavín með! Þessar ristuðu súrdeigssneiðar voru hreint út sagt dásamlegar!

Ég útbjó sneiðarnar um síðustu helgi og þær voru ekki lengi að hverfa í „síðdegiskaffinu“ á laugardeginum með dásamlegu rósavíni.

Ristaðar fíkjusneiðar og rósavín
- Gott súrdeigsbrauð (10 sneiðar)
- 2 x Dala brie ostur
- Klettasalat
- 10 sneiðar hráskinka
- Ferskar fíkjur
- Ólífuolía
- Gróft salt
- Sneiðið niður brauðið, penslið með ólífuolíu og stráið smá grófu salti yfir.
- Skerið ostinn í sneiðar og geymið (það fara síðan um 3 ostsneiðar á hverja brauðsneið).
- Ristið brauðsneiðarnar í 200°C heitum ofni í um 2-3 mínútur, takið út og setjið ostinn yfir, ristið áfram í um 1 mínútu eða þar til osturinn bráðnar aðeins niður og leyfið hitanum að rjúka vel úr sneiðinni.
- Setjið eina hráskinkusneið yfir ostinn, næst smá klettasalat og að lokum niðurskornar fíkjusneiðar.

Það tók enga stund að útbúa þessa dásemd og ekki skemmir fyrir að sneiðin er bæði falleg og ljúffeng!

Megið endilega fylgjast með líka á INSTAGRAM