Amerískar súkkulaðibitakökur



⌑ Samstarf ⌑
Súkkulaðibitakökur með Cadbury kakó

Þessar kökur sko! Namm þær eru svooooooooooo góðar að þær kláruðust upp á einum degi, hahaha!

Djúsí súkkulaðibitakökur

Nýbakaðar súkkulaðibitakökur og ísköld mjólk, já það er sko alveg hægt að borða nokkrar, kannski meira að segja svolítið margar þannig, hahaha!

Súkkulaðismákökur

Amerískar súkkulaðibitakökur uppskrift

Uppskrift gefur um 15 stykki

  • 120 g hveiti
  • 50 g Cadbury bökunarkakó
  • 1 tsk. matarsódi
  • ½ tsk. salt
  • 120 g smjör við stofuhita
  • 100 g sykur
  • 100 g púðursykur
  • 1 egg
  • 2 tsk. vanilludropar
  • 30 ml nýmjólk
  • 150 g súkkulaðidropar (+ meira í lokin)
  • Sjávarsalt
  1. Setjið hveiti, kakó, matarsóda og salt í skál og leggið til hliðar.
  2. Þeytið saman smjör, sykur og púðursykur þar til létt og ljóst.
  3. Bætið egginu og vanilludropunum saman við og skafið niður á milli.
  4. Nú mega þurrefnin fara saman við smjörblönduna og í lokin má hella mjólkinni og súkkulaðidropunum saman við.
  5. Næst má plasta skálina með deiginu og geyma í kæli í að minnsta kosti 3 klukkustundir eða yfir nótt.
  6. Hitið ofninn í 175°C og takið deigið út úr kælinum um 15 mínútum áður en það er sett á bökunarplötu.
  7. Notið sléttfulla ísskeið (um 2 matskeiðar) af deigi fyrir hverja köku, hafið gott bil á milli og bakið í um 12-14 mínútur.
  8. Um leið og kökurnar eru teknar úr ofninum má setja nokkra súkkulaðidropa ofan á hverja köku og strá smá sjávarsalti yfir þær allar.
Cadbury bökunarkakó í jólabaksturinn

Klárlega skemmtileg tilbreyting frá hinum hefðbundnu smákökum og gaman að hafa smá fjölbreytni í jólabakstrinum. Síðan er ég á því að maður á bara að baka eina sort og klára hana á aðventunni á meðan hún er ný og fersk, síðan bara baka jafnóðum meira og hafa það huggulegt!

Jólabaksturinn

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun