
Sesarsalat er algjör klassík! Hér er ég búin að taka eitt slíkt upp á næsta stig og bæta út í það öllu því besta svo úr varð djúsí og fullkomið salat.

Namm þetta er sko gott!

Djúsí sesarsalat með kjúkling uppskrift
Fyrir um 4 manns
- 1 flaska Hellmann‘s Ceasar salad dressing með Smoked Garlic (mögulega meira, fer eftir smekk)
- 1 pk. kjúklingalærakjöt
- Kjúklingakrydd
- 200 g stökkt, mulið beikon
- Romaine salat
- ½ brokkolihaus
- 1 granatepli
- Lúka af vínberjum
- Brauðteningar
- Parmesanostur
- Ólífuolía til steikningar
- Hitið ofninn í 190°C og steikið kjúklinginn upp úr olíu á meðan, rétt til þess að brúna hann aðeins og loka honum. Færið þá yfir í eldfast mót og setjið í ofninn í um 15-20 mínútur (eftir stærð bitanna).
- Skerið niður salat, brokkoli, vínber og náið fræjunum úr granateplinu.
- Skerið kjúklinginn í sneiðar þegar hann er tilbúinn og blandið öllum hráefnum saman í skál og berið fram. Setjið rúmlega helminginn af dressingunni saman við og hrærið saman og síðan getur hver og einn skammtað sér meiri dressingu að vild.
- Gott er að hafa brauðteninga í salatinu og þá má ýmist setja í salatið áður en öllu er blandað saman eða eftir á, samhliða parmesan ostinum.

Það tekur stuttan tíma að útbúa þetta undursamlega salat og ég mæli sannarlega með því að þið prófið þessa snilldar dressingu frá Hellmann’s!
