Jólaís með súkkulaðisósu



⌑ Samstarf ⌑
Besti jólaísinn með Toblerone og súkkulaðisósu

Það er svooooo einfalt að útbúa ljúffengan heimatilbúinn ís og mér finnst heit sósa algjörlega toppa slíka dásemd.

Jólaísinn

Toblerone, kókosbollur, fersk jarðarber og heit Toblerone sósa fullkomna þennan rjómalagaða jólaís.

Jólaís með Toblerone og kókosbollum

Jólaís með heitri Toblerone sósu uppskrift

Jólaís uppskrift

  • 4 egg (aðskilin)
  • 50 g púðursykur
  • 30 g sykur
  • 2 tsk. vanillusykur
  • 350 ml þeyttur jólarjómi frá Gott í matinn
  • 6 litlar kókosbollur (skornar í tvennt)
  • 100 g saxað Toblerone
  1. Þeytið eggjarauður og sykur þar til létt og ljóst og bætið vanillusykri saman við í lokin.
  2. Vefjið þeyttum rjóma saman við með sleif og bætið Toblerone saman við.
  3. Að lokum má stífþeyta eggjahvíturnar og vefja þeim varlega saman við rjómablönduna og setja kókosbollurnar saman við alveg í lokin.
  4. Hellið í  ílangt kökuform sem búið er að plasta að innan með plastfilmu og frystið í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
  5. Takið ísinn úr forminu þegar það á að bera hann fram og skreytið með kókosbollum, jarðarberjum, söxuðu Toblerone og Tobleronesósu.

Súkkulaðisósa uppskrift

  • 200 g Toblerone
  • 100 ml jólarjómi frá Gott í matinn
  1. Bræðið Toblerone og rjóma saman í potti þar til súkkulaðið er bráðið.
  2. Leyfið sósunni aðeins að þykkna og hitanum að rjúka úr og berið fram með ísnum.
Toblerone jólaís með Toblerone sósu

Ef það er eitthvað sem ég myndi taka með mér á eyðieyju….þá er það rjómi! Það er oft gert grín að mér þegar kíkt er í ísskápinn en ég kaupi rjóma í hverri búðarferð, bara svona til að vera viss um að verða ekki uppiskroppa með slíkan og enda stundum með nokkra lítra í ísskápnum, hahaha! En þá er bara að baka rjómapönnsur, gera ís, rjómapasta, sósu eða eitthvað annað rjómalagað.

Heimatilbúinn jólaís með súkkulaðisósu

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
    0
    Karfan þín
    Karfan er tómNetverslun