
Hér er á ferðinni stórkostlegur og silkimjúkur Ris a la mande grautur sem birtist í blaðinu Hátíðarmatur í Morgunblaðinu á dögunum.

Tengdamóðir mín býður alltaf upp á möndlugraut í hádeginu á Aðfangadag nema það verður víst ekki í boði þetta árið þar sem fjölskyldan fer yfir Covid takmörkin. Hér kemur hins vegar dásamleg uppskrift sem við öll getum nýtt okkur til að búa til undursamlegan möndlugraut sjálf!

Ris a la mande uppskrift
Uppskrift dugar í um 10 glös/skálar (eftir stærð)
Möndlugrautur uppskrift
- 330 g Tilda Long Grain hrísgrjón (ósoðin)
- 1, 6 l nýmjólk
- 2 vanillustangir
- 1 msk. smjör
- 2 msk. sykur
- ½ tsk. salt
- Bræðið smjörið í stórum potti og hellið mjólkinni næst saman við og hitið að suðu.
- Þá má hræra hrísgrjónunum saman við og gott er að hræra nokkrum sinnum í þeim fyrstu mínúturnar til að þau festist síður við botninn.
- Lækkið hitann vel niður og bætið sykri og salti í pottinn.
- Skafið fræin úr vanillustöngunum og bætið saman við og leyfið stöngunum sjálfum að malla með í pottinum (takið þær síðan úr í lokin).
- Grauturinn má malla við vægan hita í um 35 mínútur og gott er að hræra í honum nokkrum sinnum á meðan.
- Grautinn þarf síðan að kæla áður en öðrum hráefnum er hrært saman við hann. Hægt er að útbúa grautinn sjálfan deginum áður og geyma í kæli.
Önnur hráefni
- 250 ml rjómi
- 70 g flórsykur
- 100 g ristaðar möndluflögur
- Kirsuberjasósa
- Léttþeytið saman rjóma og flórsykur og vefjið varlega saman við kældan grautinn. Gott er að brjóta grautinn fyrst upp með gaffli.
- Setjið graut í fallegar skálar/glös, kirsuberjasósu yfir og að lokum ristaðar möndluflögur.

Þessi hrísgrjón pössuðu fullkomlega fyrir þennan rétt, silkimjúk og góð!

Mmm þetta var svo svakalega góður grautur að ég fæ vatn í munninn við að skrifa þessa færslu.
